Körfubolti

Hamar og Þór hætta sam­starfi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Lið Hamars/Þórs hefur liðið undir lok.
Lið Hamars/Þórs hefur liðið undir lok. vísir / anton

Stjórnir körfuknattleiksdeilda Hamars og Þórs hafa ákveðið að ljúka samstarfi félaganna í meistaraflokki kvenna í körfubolta. Þór hefur óskað eftir því að skrá lið til leiks í 1. deild kvenna á næsta tímabili.

Sex ára samstarfi Hamars/Þórs er þar með lokið. Félögin tilkynntu ákvörðunina á samfélagsmiðlum.

Hamar/Þór hélt sæti sínu í úrvalsdeildinni í vor eftir umspil við Fjölni. En þar sem samstarfi félaganna er lokið verður Hamar/Þór ekki skráð til leiks í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. 

Ármanni hefur verið boðið sætið í úrvalsdeildinni sem Hamar/Þór lætur eftir. 

Þórsarar stefna á að skrá lið til leiks í 1. deildinni á næsta tímabili en ekki kemur fram hvað verður um lið Hamars eða hvort það stefni á keppni í 1. deildinni.

„Samstarfið hefur skapað vettvang fyrir leikmenn til að þróast og keppa á háu stigi og skilað fjölmörgum eftirminnilegum augnablikum fyrir leikmenn, þjálfara, sjálfboðaliða og stuðningsfólk.

Rekstur meistaraflokka er umfangsmikill og kostnaðarsamur. Á undanförnum misserum hefur orðið ljóst að aukið fjármagn þyrfti til að standa undir áframhaldandi rekstri á þeim grunni sem félögin höfðu sett sér markmið um. Félögin náðu ekki samkomulagi um forsendur áframhaldandi samstarfs og hafa því ákveðið að fara hvort sína leið,” segir í tilkynningu sem birtist á miðlum beggja félaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×