Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sindri Sverrisson skrifar 10. júní 2026 15:47 Strákarnir okkar hefja HM í Magdeburg í janúar. EPA/JOHAN NILSSON Ísland hafði heppnina með sér þegar dregið var í riðla fyrir HM karla í handbolta í dag. Mótið fer fram í Þýskalandi í byrjun næsta árs.
Ísland fékk Norður-Makedóníu úr næstefsta styrkleikaflokki, í stað til dæmis Frakklands eða Spánar, og svo einnig Japan og Barein í sinn riðil. Ef þessi riðill hljómar kunnuglega þá má benda á að á HM 2019 var Ísland einmitt einnig með Norður-Makedóníu, Japan og Barein í riðli, en þá í sex liða riðli þar sem einnig voru Spánn og Króatía. Japan var þá undir stjórn Dags Sigurðssonar og Barein undir stjórn Arons Kristjánssonar. Dagur og Aron gætu mæst Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Króatíu voru ekki eins heppnir en þeir fengu Spán, Síle og Tyrkland með sér í C-riðil. Dagur og Aron Kristjánsson gætu svo mögulega mæst í milliriðli því lærisveinar Arons í Kúveit eru í D-riðli, með Argentínu, Frakklandi og Brasilíu. Dregið var í riðla í München í dag, í beinu streymi á Vísi, og hér að neðan má sjá riðlana. Riðlarnir á HM í Þýskalandi 2027 A-riðill í München: Þýskaland Serbía Túnis Úrúgvæ B-riðill í Stuttgart: Egyptaland Ítalía Grænhöfðaeyjar Sádi-Arabía C-riðill í München: Króatía Spánn Síle Tyrkland D-riðill í Stuttgart: Argentína Frakkland Brasilía Kúveit E-riðill í Kiel: Svíþjóð Noregur Grikkland Katar F-riðill í Magdeburg: Portúgal Færeyjar Pólland Alsír G-riðill í Kiel: Danmörk Slóvenía Bandaríkin Angóla H-riðill í Magdeburg: Ísland Norður-Makedónía Barein Japan Gestgjafar HM, Þjóðverjar, höfðu þegar ákveðið að Ísland yrði í H-riðli sem spilaður verður í Magdeburg. Ísland var í efsta styrkleikaflokki og gat því ekki fengið aðra þjóð úr þeim flokki í sinn riðil en fékk einn mótherja úr 2., 3. og 4. flokki. Milliriðil með Dönum bíður Þrjú af fjórum liðum úr H-riðlinum komast áfram í milliriðil og spila þar með þremur liðum úr G-riðli, í Hannover. Í þeim riðli eru meðal annars ríkjandi meistarar Danmerkur en einnig Slóvenía, Angóla og Bandaríkin. Alls spila 32 lið á HM, í átta fjögurra liða riðlum. Þrjú lið fara áfram úr hverjum riðli og myndast þá fjórir sex liða milliriðlar. Úr hverjum milliriðli komast tvö lið áfram í 8-liða útsláttarkeppni sem öll fer fram í Lanxess Arena í Köln.
HM karla í handbolta 2027 Landslið karla í handbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira