„Við erum félagar, við Messi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2026 19:32 Daníel Tristan Guðjohnsen kynnti sig fyrir Lionel Messi eftir leik Íslands og Argentínu í Auburn í Bandaríkjunum í nótt. Getty/Ernest Kolodziej/Gustavo Pagano Íslenski landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen komst í heimsfjölmiðlana eftir vináttulandsleik Íslands og Argentínu í nótt en hann ræddi leikinn og endurfundi við Lionel Messi í Reykjavík síðdegis.
Daníel Tristan er nú tvítugur en hann fæddist í mars 2006 en rúmum þremur mánuðum síðar var faðir hans, Eiður Smári Guðjohnsen, seldur frá Chelsea til Barcelona. Eiður Smári spilaði með Barcelona fyrstu þrjú ár Daníels Tristans og þá var Eiður liðsfélagi Lionel Messi. Daníel Tristan fór til Messi eftir leik og sagði honum að hann hefði spilað með föður hans en til eru myndir af ungum Daníel með Messi frá þessum tíma. Daníel ræddi þessa endurfundi á Bylgjunni. En hvernig gerðist þetta? „Ég labbaði bara upp að honum og spurði hann bara hvort hann myndi eftir mér frá því að ég var þarna lítill strákur með pabba í Barcelona,“ sagði Daníel Tristan en það er hægt að hlusta á viðtalið hér fyrir ofan. „Hann sagðist ekki alveg muna en svo náttúrulega þegar hann fattaði að ég væri Guðjohnsen, þá var þetta bara spjall um pabba og hvar ég væri að spila og eitthvað svona,“ sagði Daníel. „Svo spurði ég hann hvort það væri nokkuð með treyju fyrir mig og þá sagði hann já og ég fór bara inn í klefa til hans og sótti treyju síðan eftir á,“ sagði Daníel. Hann fékk ekki treyjuna hjá Messi strax eftir leik því þá teyju fékk Jón Dagur Þorsteinsson. „Við fórum strákarnir til að redda einhverjum treyjum og þá vildi hann fá númer 22 merkt Guðjohnsen og ég fékk treyjuna hans þá,“ sagði Daníel en hvernig er að mæta heimsmeisturum Argentínu? „Ég bara veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því, þetta var alveg allt öðruvísi. Þetta eru bara ógeðslega góðir leikmenn og það er allt annað tempó í þeim. Þetta er bara alvörulið og það er náttúrulega ógeðslega gaman að spila á móti bestu leikmönnum í heimi og hvað þá á móti Messi,“ sagði Daníel. Daníel er alinn upp á Spáni, lék lengi með unglingaliði Barcelona og talar því reiprennandi spænsku. Samskiptin við Messi gengu því vel. „Ég er með spænskuna á hreinu. Ég bjó náttúrulega á Spáni í sextán ár þannig að ég ætti nú að vera með hana,“ sagði Daníel. Þannig að Daníel og Messi eru perluvinir? „Já, við erum félagar, við Messi,“ sagði Daníel léttur en bað hann þig um að skila kveðju til pabba? „Já, hann sagði mér að heilsa bara fjölskyldunni og pabba og þannig. Það var gott,“ sagði Daníel. "¿TE ACUERDAS DE MÍ, LEO?" 🤔▶️ El encuentro entre Messi y Daniel Guðjohnsen,, hijo de Eiður Guðjohnsen, delantero de Barcelona que compartió equipo con la Pulga entre 2006 y 2009. pic.twitter.com/z3tAexhmoP— DSPORTS (@DSports) June 10, 2026
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Fleiri fréttir Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Sjá meira