Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júní 2026 22:55 María Rut Kristinsdóttir er þingmaður Viðreisnar. Vísir/Vilhelm María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, opnaði sig um hatursorðræðu og áhyggjur sínar af lýðræðislegri umræðu. Svæsin ummæli um hana og aðra þingmenn vekja upp spurningar. „
Þessi manneskja ásamt eiginkonu sinni verður hengd á Austurvelli von bráðar fyrir landráð og andlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart saklausum skólabörnum.“ Þessi orð voru skrifuð um mig og eiginkonu mína á dögunum,“ sagði María Rut í upphafi ræðu sinnar á eldhúsdegi Alþingis. Þá hafi verið ritað undir mynd af nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar að fólkið á myndinni yrði tekið af lífi fyrir gróf landráð og sagt að senda ætti Pawel Bartoszek, samflokksmann Maríu, heim til sín en hann hefur ættir að rekja til Póllands. „Þetta er skrifað af venjulegri manneskju á bak við lyklaborð eða kannski einhvers konar gervimenni sem er hannað til að þyrla upp ryki eða búa til reiði. Ég hugsa að hver einasti stjórnmálamaður hér inni kannist við athugasemdir af þessum toga úr öllum áttum,“ segir María Rut. Hún spyr hvernig samfélagið hafi endað á þessum stað og hverjir græði á því að breikka gjána. Sjálf sé hún orðin hálfdofin yfir heiftinni. Pólitík eigi ekki að vera persónuleg „Við eigum að sjálfsögðu að hafa ólíkar skoðanir. Við eigum að tjá þær, við eigum að rökræða og við eigum að vera óhrædd við að vera ósammála. Þannig virka stjórnmálin. En pólitík á ekki að vera persónuleg,“ segir María. Hún segir það vega að lýðræðinu, tjáningu fólks, persónufrelsi og öryggi. „Það vegur að grunngildum okkar og það býr til heim þar sem búið er til einhvers konar opið skotleyfi á jaðarsetta hópa, opið skotleyfi á fólk sem gefur sig að samfélagsmálunum og það finnst mér vera vond þróun og beinlínis hættuleg.“ Hún snýr umræðunni síðan að Evrópusambandinu. „Þar eru stærstu bergmálshellar dagsins í dag. Við erum með já-hellinn og við erum með nei-hellinn. Stundum er eins og hvorug hliðin trúi því að hin sé í góðri trú með sínar meiningar,“ segir María Rut. Upplýsingaóreiðan sé rosaleg og staðreyndir fjúki um veður og vind. „Kæri óvissuhópur, hugur minn er hjá ykkur. Ég vona að þið nýtið sumarið vel í að ígrunda mál ykkar. En umfram allt vonast ég til þess að við tökum þessa umræðu af virðingu, af yfirvegun og af þeirri auðmýkt að viðurkenna að fólk getur komist að ólíkri niðurstöðu af heiðarlegum ástæðum.“
Alþingi Viðreisn Hinsegin Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira