Alvöru þægindi eftir átján holur BL 12. júní 2026 08:50 Hlynur Sigurðsson, framleiðandi og forfallinn golfari er ánægður með lúxusþægindin í Hongqi EHS7. „Golfhringur getur tekið fjórar til fimm klukkustundir og eftir hann er gott að setjast inn í bíl sem býður upp á alvöru þægindi,“ segir Hlynur Sigurðsson, framleiðandi og forfallinn golfari en hann lætur fara vel um sig í Hongqi EHS7 rafmangsbílnum frá BL í þáttunum Golfarinn á Sýn sem hann stýrir ásamt Ingu Lind.
Hongqi EHS7 er stór, alrafmagnaður lúxusjeppi, afar rúmgóður og vinsæll hjá þeim sem þurfa gott pláss og vilja ferðast þægilega. Nudd í leðurklæddum sætum og dempuð hljóðvist inni í bílnum gera mikið eftir langan dag á golfvellinum en það er líka hægt að hækka í græjunum, bíllinn er búinn 19 hátölurum. Hlynur og Inga Lind stýra þættinum Golfarinn á Sýn og keyra milli golfvalla á glæsilegum Hongqi EHS7. Skottið tekur endalaust við Hlynur segir þó stærsta tromp þessa bíls vera hve hann er rúmgóður. Allir hafi mikið fótarými, líka þau sem sitja aftur í og vel fari um fullorðna golffélaga í aftursætunum. Svo er víst nóg pláss fyrir golfsettin. „Farangursrýmið í bílnum er mjög stórt svo við komum öllu vel fyrir, skottið gleypir auðveldlega fleiri en eitt golfsett, kerru og annan farangur,“ segir Hlynur. Auk þess er hægt að leggja aftursætin niður ef flytja þarf meira og skottið er rafstýrt með fótaskynjara. „Það held ég að margir golfarar kunni að meta, að geta opnað skottið án þess að þurfa að leggja allt frá sér,“ segir Hlynur. Drægni fyrir golfhelgar sumarsins HS7 er fjórhjóladrifinn, dregur allt að 540 km WLTP, er með 111 kWh rafhlöðu og ætti t.d. að komast að sumri til norður á Akureyri á einni hleðslu. Það má því þræða golfvellina hringinn í kringum landið í sumar án þess að þurfa að hlaða oft og á langferðum skipta akstursþægindin máli. Loftfjöðrun bílsins og rafstýrðir demparar skila afar mjúkum akstri á vegunum. „Við erum búin að vera á bílnum núna í nokkra daga og mér finnst mjög þægilegt að keyra hann. Hann rennur mjúklega. Hann er stór en það kemur á óvart hvað hann er lipur og auðvelt að leggja,“ segir Hlynur en bíllinn er búinn 360° myndavélakerfi. „Þessi bíll hentar mjög vel í golfferðirnar. Pláss fyrir kylfurnar, skóna, kerrurnar og allt dótið, og svo keyri ég bara af stað með nuddið í gangi og þá er ég klár í átján holu hring eftir vinnu,“ segir Hlynur.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira