Innlent

Segja brottfararstöð ekki sam­rýmast Barnasáttmálanum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Íslandsdeild Amnesty International segir ný lög um brottfararstöð gera ráð fyrir frelsissviptingu barna.
Íslandsdeild Amnesty International segir ný lög um brottfararstöð gera ráð fyrir frelsissviptingu barna. Vísir/Vilhelm

Íslandsdeild Amnesty International telur nýsamþykkt lög um brottfararstöð áhyggjuefni fyrir mannréttindavernd hérlendis. Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu varðandi samþykkt laganna í dag. 

Í yfirlýsingunni segja samtökin að með lögunum heimili stjórnvöld frelsissviptingu sem hefur ekki gerst sekt um refsiverða háttsemi. Samtökin segja frelsissviptingu eitt alvarlegasta inngrip sem ríkið getur beitt einstaklingi.

Deildin hefur sérstakar áhyggjur af því að lögin geri ráð fyrir frelsissviptingu barna. Þau telja lögin ekki samrýmast skuldbindingum Íslands til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 

Samtökin telja að lögin feli í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum og hvatti stjórnvöld til þess að falla frá frumvarpinu og móta þess í stað annars konar úrræði í nóvember 2025. 


Tengdar fréttir

No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð

„Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks.

Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“

Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar í aðsendri grein á vef Vísis í dag. 55 skrifa undir greinina og mótmæla lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð. Þau segja „krappa hægri beygju“ í stefnu flokksins ekki hafa verið rædda á vettvangi hans og hún sé, að þeirra mati, í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×