Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar 14. júní 2026 14:46 Áhugavert var að hlusta á Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, ræða stöðu menntakerfisins í Sprengisandi. Þar var meðal annars rætt um námsmat, framlög til skólamála og námsefnisgerð. Ég tek undir margt af því sem þar kom fram. Framlög til námsefnisgerðar hafa verið allt of lág og það er alvarlegt mál ef íslenskt skólakerfi hefur ekki nægilega öflugt stuðningskerfi þegar kemur að þróun, útgáfu og dreifingu vandaðs námsefnis. Umræðan þarf þó ekki að snúast um annaðhvort ríkið eða einkaaðila. Þórdís nefndi sjálf að sumir kennarar hafi verið duglegir að búa til námsefni, og þar liggur einmitt mikilvægur styrkleiki. Það væri hægt að hugsa sér blandaða leið þar sem ríkið tekur stærra hlutverk en styður um leið betur við sjálfstæða höfunda, kennara og útgefendur, stóra sem smáa, sem þegar eru að þróa efni. Þannig mætti tryggja gæði, aðgengi, faglegt mat og jafnræði. Þróunarsjóður námsgagna gæti verið ein leið til þess, ef framlög til hans eru stóraukin og ferlið styrkt með fjölbreyttari sérfræðiþekkingu, meðal annars með því að fá fleira fólk með beina reynslu af námsefnisgerð og útgáfu að stefnumótun, mati og úthlutunum. Ég nefni þetta vegna þess að ég hef sjálfur unnið að þróun námsefnis frá árinu 2015 og stofnaði árið 2024 lítið fyrirtæki utan um slíka útgáfu. Sú vinna hefur sprottið úr eigin kennslureynslu, samtali við aðra fagmenn og breytingum sem hafa átt sér stað í skólastarfi og samfélagi, bæði hér heima og erlendis. Hún byggir jafnframt á þeirri sýn að íslenskt námsefni þurfi að vera fjölbreyttara, aðgengilegra og betur aðlagað ólíkum nemendahópum. Verkefnið var kynnt fyrir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir um ári og fékk jákvæð viðbrögð, en ekki varð framhald á samtalinu. Ef við teljum að námsefnisgerð hafi verið vanrækt, þá þarf líka að fjármagna betur þau úrræði sem þegar eru til og skapa sérstakan stuðning fyrir sjálfstæða höfunda, kennara og minni útgefendur sem vinna að þróun námsefnis. Í síðustu úthlutun Þróunarsjóðsins virðist hafa verið lögð áhersla á verkefni sem þegar voru komin með útgáfusamning, sem er skiljanlegt þar sem slíkt getur aukið líkur á að námsefni komist í raunverulega notkun. Samhliða því þarf þó að tryggja stuðning við verkefni sem spretta úr kennslu, þróunarvinnu og raunverulegum þörfum nemenda, en eru ekki endilega komin í hefðbundinn útgáfufarveg. Ef ríkið tekur stærra hlutverk í námsefnisgerð er mikilvægt að það gerist í virku samstarfi við sjálfstæða höfunda, kennara og útgefendur, stóra sem smáa, sem þegar hafa lagt mikla vinnu í íslenskt námsefni. Slík uppbygging verður best heppnuð ef hún styrkir þá þekkingu, reynslu og þróunarvinnu sem þegar er til hjá kennurum, höfundum og útgefendum, í stað þess að ýta henni til hliðar. Höfundur er kennari og stofnandi stafbok.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bogi Ragnarsson Skóla- og menntamál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar