„Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 14. júní 2026 20:05 Kjartan Kári Halldórsson átti flottan leik fyrir FH. Vísir/Anton Brink FH sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í dag þegar þeir heimsótti Keflavík í tíundu umferð Bestu deild karla í dag. FH komst tveimur mörkum yfir áður en Keflavík minnkaði muninn í uppbótartíma og þar við sat. „
Þetta var rosalegur leikur“ sagði Kjartan Kári Halldórsson leikmaður FH eftir sigurinn í dag. „Þetta var mikið hlaup og völlurinn var erfiður, hann var þungur en við vorum bara flottir og börðumst fyrir hvorn annan og loksins datt þetta okkar meginn í þetta skiptið“ „Við erum búnir að sýna góðar frammistöður upp á síðkastið og mér finnst úrslitin í síðustu leikjum ekki hafa verið sanngjörn og loksins kom sigurinn“ Sigurinn í dag var sá fyrsti í deildinni hjá FH og var hann kærkominn en þó vildi Kjartan Kári ekki endilega meina að þungu fargi væri létt af liðinu. „Já þetta var svolítið kærkomið. Við erum búnir að vera að ég myndi segja óheppnir en það er bara geggjað að fá fyrsta sigurinn“ „Við vorum alls ekki þungir, við vorum bara svolítið slakir inn á milli og þegar þú slekkur á þér í þessari deild í 30 sekúndur þá er þér refsað en núna vorum við klárir í 90+ mínútur og það skilaði okkur sigri“ Kjartan Kári skoraði annað mark leiksins og það var frábært mark utan af velli sem var óverjandi fyrir markvörð Keflavíkur sem kom engum vörnum við. „Ég hef gert þetta nokkrum sinnum og ég sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta og loksins endaði hann inni“ Aðspurður um hvað það væri sem skildi á milli fannst honum liðsheildin skila sínu. „Við vorum mjög flottir í fyrri hálfleik. Við vorum að haupa mikið og við vorum að vinna seinni boltana“ „Við slökktum á okkur kannski inn á milli þegar þeir ná að stjórna leiknum í fyrri hálfleik og síðan í seinni hálfleik þá fannst mér við bakka aðeins of mikið niður en það sýndi bara eljuna að við fögnum öllu þegar við hendum okkur fyrir skot og ég myndi bara segja liðsheildin sem að skilaði í dag “ Er þetta vendipunkturinn hjá FH? „Ég ætla ekki að segja neitt en það er gott að fá sigurinn og núna þurfum við bara að byggja á þessu“ sagði Kjartan Kári Halldórsson.
Besta deild karla FH Fótbolti Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira