Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 09:26 Tristan Freyr Ingólfsson virtist vilja svara stuðningsmönnum Fylkis þegar hann fagnaði marki sínu undir lok fyrri hálfleiks. Skjáskot/RÚV Grótta hefur sent frá sér yfirlýsingu og farið fram á að hegðun stuðningsmanna Fylkis verði tekin til skoðunar, eftir leik liðanna í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á laugardaginn.
Í yfirlýsingu Gróttumanna segir að umgjörð leiksins hafi verið til fyrirmyndar af hálfu Fylkis en að hegðun hóps stuðningsmanna hafi hins vegar verið til skammar. „Meðan á leiknum stóð veittist hópur stuðningsmanna Fylkis ítrekað að leikmanni Gróttu og aðstandendum hans með grófum og óviðurkvæmilegum ummælum og athugasemdum. Umræddur hópur stuðningsmanna hafði m.a. í frammi kynferðislegar athugasemdir sem tengdust fjölskyldumeðlimum leikmannsins. Auk þess varð unnusta leikmannsins fyrir aðkasti stuðningsmanna á meðan á leik stóð og aftur í verslun í nágrenninu löngu eftir að leiknum var lokið,“ segir í yfirlýsingu Gróttu. Ókvæðisorðin úr stúkunni virðast að einhverju leyti hafa beinst að Tristan Frey Ingólfssyni sem kom Gróttu yfir í lok fyrri hálfleiks því hann fagnaði svo markinu beint fyrir framan hóp stuðningsmanna Fylkis. Tristan Freyr er að koma til baka eftir fjögurra ára meiðslamartröð og hefur heldur betur komið sterkur inn hjá Gróttu. Þetta var hans fjórða mark í bikarnum í sumar. Leikurinn var í beinni útsendingu RÚV, í lýsingu Harðar Magnússonar, og ljóst að honum var misboðið yfir hegðun stuðningsmannanna. „Ég veit ekki alveg með að vera með svona lúður... nota ljót orð og annað. Ég held að Fylkismenn ættu að gera eitthvað í þessu. Það er eitt að nota svona til að hvetja sína menn, en menn verða nú að hafa einhverja háttvísi,“ sagði Hörður en samkvæmt yfirlýsingu Gróttu var þá óhróðurinn rétt að byrja og náði eins og fyrr segir inn í verslun í nágrenninu eftir leik. Vænta þess að málið verði tekið til skoðunar „Slíkar árásir eins og leikmaður Gróttu og fjölskylda hans urðu fyrir á leiknum í gær eiga ekkert erindi í íslenskri knattspyrnu. Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu fordæmir hegðun og framkomu þessa hóps stuðningsmanna Fylkis og væntir þess að málið verði tekið til skoðunar,“ segir í yfirlýsingu Gróttu. Fylkir vann leikinn 4-2 og komst þar með í undanúrslit keppninnar þar sem liðið tekur á móti Aftureldingu í öðrum Lengjudeildarslag. Breiðablik og Víkingur mætast í hinum undanúrslitaleiknum.
Grótta Fylkir Mjólkurbikar karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira