Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Kjartan Kjartansson skrifar 16. júní 2026 06:54 Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir leiðtoga Evróusambandsríkja hafa margar hugmyndir um kröfur sem ný aðildarríki verði að uppfylla. Vísir/EPA Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir nýjar reglur sem framkvæmdastjórnin er með í smíðum eigi að tryggja að ný aðildarríki fari að reglum og haldi ekki sambandinu í heljargreipum. Reglurnar muni „bíta fast“ þau ríki sem fara ekki eftir þeim.
Evrópskir ráðamenn eru enn minnugir þess hvernig Ungverjar létu undir stjórn Viktors Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann beitti ítrekað neitunarvaldi til þess að stöðva aðgerðir sem einhugur var annars um innan sambandsins, þar á meðal um refsiaðgerðir gegn Rússum og stuðning við Úkraínumenn. Orbán var einnig sakaður um að grafa undan réttarríkinu og lýðræði í Ungverjalandi með breytingum sem hann gerði á dómskerfinu og kosningakerfi landsins í stjórnartíð sinni. Evrópusambandið frysti rúmlega tíu milljarða evra greiðslur til Ungverjalands vegna þess. Nú er framkvæmdastjórn ESB með nýjar reglur í smíðum sem eiga að tryggja að framtíðaraðildarríki geti ekki hleypt öllu í uppnám með því að beita neitunarvaldi eða undið ofan af umbótum heima fyrir sem eru skilyrði fyrir því að ríki fái inngöngu í bandalagið. „Ef ný aðildarríki fylgja reglunum þá gerist ekkert. Ef þau fylgja ekki reglunum munu þessir varnaglar bíta fast og það er kerfið sem við erum að smíða,“ segir Mart Kos, stækkunarstjóri ESB í viðtali við evrópska blaðið Politico. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin á Íslandi um viðræður um aðild að Evrópusambandinu í ágúst. Úkraína og Moldóva eru nú á frumstigum aðildarviðræðna og Svartfjallaland þokast nær fullri aðild. Haldi sig við umbæturnar eftir að aðild fæst Á meðal þess sem nýju reglurnar gætu falið í sér væri aðlögunartímabil áður en ný aðildarríki fá ákveðin réttindi að fullu. Ríki eins og Frakkland, Þýskaland og Holland hafa barist fyrir því að tryggt verði að ný aðildarríki haldi sig við umbætur sem komið er á í aðlögun að sambandinu. Hugsanlegt er einnig að mögulegum aðildarríkjum á Balkanskaga verði boðnir efnahagslegir hvatar áður en þau geta orðið fullgild aðildarríki. „Ég vona að við getum sagt meira bráðlega en aðalhugmyndun er sú, í ljósi reynslu okkar af sumum aðildarríkjum, að við höfum átt í vandamálum vegna þess að reglunum var ekki lengur fylgt,“ segir Kos.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ungverjaland Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira