Sport

Besta sætið: Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins

Sindri Sverrisson skrifar
Það verður gríðarleg stemning í Víkinni í kvöld og ljóst að þar mætti koma stærri stúka sem fyrst.
Það verður gríðarleg stemning í Víkinni í kvöld og ljóst að þar mætti koma stærri stúka sem fyrst. Diego/Besta sætið

Það var af nægu að taka í Besta sætinu í dag og stemningin mikil fyrir þeirri veislu sem fram undan er í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. 

HM í fótbolta er í fullum gangi þar sem Grænhöfðeyingur toppaði Rúrik Gíslason margfalt í vinsældum og Englendingar stíga brátt á svið.

Það styttist svo óðum í að Gunnlaugur Árni hefji leik á Opna bandaríska mótinu í golfi, þó að hann virðist sjálfur pollslakur yfir því. Gleðifréttir Garðbæinga sem stóðust samkeppni við litla bróður um Hilmar Smára Henningsson voru einnig til umræðu í Besta sætinu, ásamt fleiru.

Besta sætið er aðgengilegt í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×