Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Kristján Már Unnarsson skrifar 17. júní 2026 07:22 Atli Guðjónsson er verkstjóri hjá Vörubílstjórafélaginu Mjölni í vegagerðinni í Vatnsdal. Egill Aðalsteinsson Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir frá vegagerð í Vatnsdal en Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi hóf í desember að styrkja og breikka veginn. Tíu manna hópur verktakans fór þó ekki á fullt fyrr en í vor. En hvað eru Sunnlendingar að flækjast í vegagerð norðanlands? „Hér er fínt að vera,“ svarar Atli Guðjónsson, verkstjóri hjá VBF Mjölni. Vegurinn styrktur og breikkaður á kaflanum milli Vatnsdalshóla og Hnjúks. Víðidalsfjall sést fjær.Egill Aðalsteinsson „Við erum búin að vera hérna norðanlands síðustu fjögur árin.“ -Og eruð þið þá bara alltaf lægstbjóðendur? Undirbjóðið hérna Norðlendingana? „Þeir eiga bara ekkert roð í okkur,“ svarar Atli hlæjandi hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Upphaflega stóð til að endurbyggja fimmtán kílómetra í vestanverðum Vatnsdal en í útboðinu var vegalengdin skorin niður í níu. Tilboð Mjölnis upp á 77 prósent af kostnaðaráætlun, eða 550 milljónir króna, gaf hins vegar færi á að bæta í. „Þetta eru þrettán kílómetrar í heildina,“ segir verkstjórinn. Sem þýðir að búið er að stækka verkið aftur, úr níu kílómetrum upp í þrettán. Vegurinn liggur um Vatnsdalshóla og bakka Flóðsins.Egill Aðalsteinsson Vegarkaflinn liggur um fagra náttúru, þar á meðal um Vatnsdalshóla. „Hólarnir eru allir friðaðir og það þarf að fara varlega í kringum þá.“ -Þið vandið ykkur að gera þetta vel? „Já, já, við erum með einvalalið.“ Vegurinn liggur um bæjarhlaðið á Hnjúki. Fjær sést Vatnsdalsá liðast um dalinn.Egill Aðalsteinsson Bændurnir á Hnjúki sjá fram á að losna við þjóðvegarykið. „Vegurinn er alveg um bæjarhlaðið hjá okkur og þetta er mikill sandvegur. Það eru mjög þurr sumur hérna, rignir lítið. Það er alveg ofboðslegt ryk sem gengur yfir hlaðið og íbúðarhúsið og annað,“ segir Sigurður Rúnar Magnússon, bóndi og vinnuvélaverktaki á Hnjúki, en hann starfar einnig við vegagerðina um dalinn. Sigurður Rúnar Magnússon, bóndi á Hnjúki, starfar einnig við vegagerðina um dalinn.Egill Aðalsteinsson Á bænum Vatnsdalshólum sér listakonan Dóra Sigurðardóttir fram á að auðveldara verði fyrir ferðahópa að heimsækja galleríið hennar því heimreiðin verður lagfærð. „Hún er svolítið erfið núna og svo verður breikkað og þá komast rúturnar hérna heim. En núna koma einkabílarnir,“ segir Dóra. Dóra Sigurðardóttir, listamaður í Vatnsdalshólum, vonast til að betri vegur færi henni fleiri ferðamenn í Listakot Dóru.Egill Aðalsteinsson Bændurnir á Kornsá, þau Birgir Þór Haraldsson og Harpa Birgisdóttir, vonast til að slitlagið nái alla leið til þeirra. Lenging verksins upp í þrettán kílómetra ætti að duga til að ná að Kornsá. „Já, við vonum það. Það er nú búið að stytta þetta og lengja á víxl eftir því svona hver er við stjórnvölinn hverju sinni. En þetta er alla vega byrjað. Það var mjög gaman að sjá vegavinnutækin komin hérna á staðinn,“ segir Birgir. Birgir Þór Haraldsson og Harpa Birgisdóttir, bændur á Kornsá, ásamt sonunum Ágústi Inga sex ára og Bjarka Fannari þriggja ára.Egill Aðalsteinsson Hluti vegarins verður kominn með bundið slitlag strax í sumar. „Í sumar á þessum hluta, helmingnum,“ segir Atli verkstjóri -Og hvað verður það stór hluti? „Það verða fimm kílómetrar.“ Bundið slitlag verður lagt á þennan kafla síðar í sumar.Egill Aðalsteinsson Þótt verklok séu tímasett 15. október 2027 verður slitlagið á allan kaflann, frá gatnamótum hringvegarins við Ólafslund að Kornsá, líklegast komið fyrr. „Já, þetta verður komið um mitt næsta sumar, slitlag á þetta,“ svarar verkstjóri Mjölnis.
Vegagerð Samgöngumál Samgönguáætlun Húnabyggð Tengdar fréttir Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Vegagerðin vonast til að liðlega tvöhundruð kílómetrar af malarvegum á landinu verði malbikaðir á næstu fimm árum. Innviðaráðherra segir mikið ákall úr dreifbýlinu að fá bundið slitlag á sveitavegi. 17. desember 2025 22:11 Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. 12. nóvember 2022 23:11 Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina. 19. september 2022 22:42 Sveitarstjóri segir að allir ættu að eiga rétt á bundnu slitlagi Malarvegir í byggðum landsins eiga að heyra til fortíðinni, að mati sveitarstjóra Hörgársveitar, sem kallar eftir stórátaki í lagningu bundins slitlags á sveitavegi. 23. júlí 2019 10:30 Malarvegirnir hamla eflingu ferðaþjónustu Malarvegir hamla því að ferðaþjónusta geti eflst í Dalasýslu sem mótvægi við samdrætti í landbúnaði, að mati forystumanna í héraðinu. Þar er kallað eftir alvöru byggðastefnu fyrir kosningar. 16. október 2017 20:49 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Sjá meira
Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Vegagerðin vonast til að liðlega tvöhundruð kílómetrar af malarvegum á landinu verði malbikaðir á næstu fimm árum. Innviðaráðherra segir mikið ákall úr dreifbýlinu að fá bundið slitlag á sveitavegi. 17. desember 2025 22:11
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. 12. nóvember 2022 23:11
Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina. 19. september 2022 22:42
Sveitarstjóri segir að allir ættu að eiga rétt á bundnu slitlagi Malarvegir í byggðum landsins eiga að heyra til fortíðinni, að mati sveitarstjóra Hörgársveitar, sem kallar eftir stórátaki í lagningu bundins slitlags á sveitavegi. 23. júlí 2019 10:30
Malarvegirnir hamla eflingu ferðaþjónustu Malarvegir hamla því að ferðaþjónusta geti eflst í Dalasýslu sem mótvægi við samdrætti í landbúnaði, að mati forystumanna í héraðinu. Þar er kallað eftir alvöru byggðastefnu fyrir kosningar. 16. október 2017 20:49