„Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. júní 2026 21:24 Gylfi Þór Sigurðsson var frábær á miðjunni hjá Víkingum í kvöld. vísir/Diego Gylfi Þór Sigurðsson segir að Víkingar hafi verið hungraðir í sigur gegn KR í toppslag Bestu-deildar karla í kvöld. „
Vörnin, hungrið og vinnusemin held ég,“ sagði Gylfi Þór er hann var spurður að því hvað hefði gert það að verkum að Víkingar unnu leikinn í kvöld. „Þetta var ekkert fallegur leikur og við vissum að þetta yrði mjög erfitt varnarlega. KR-ingarnir spila mjög skemmtilegan bolta. Þeir eru með mikla orku, og senda mikið af sendingum. En ég held að skipulagið og það hvernig við lögðum leikinn upp varnarlega hafi verið það sem bjó til þann möguleika að geta unnið í dag. Seinna markið kemur bara frá okkur. Pressa og vinna boltann og fyrra markið kemur eftir horn. Þannig að já, vinnusemin og skipulagið varnarlega lagði grunninn að þessum sigri.“ Þetta var í fyrsta skipti sem KR skorar ekki mark síðan liðið mátti þola 7-0 tap gegn einmitt Víkingum á síðasta tímabili. „Allir leikmenn í þessu liði okkar eru mjög duglegir. Við erum tilbúnir að leggja mikla vinnu á okkur varnarlega og þú þarft að vera hundrað prósent varnarlega á móti KR. Þú þarft að vera tilbúinn að hlaupa mjög mikið án boltans og síðan þegar þeir eru að koma með þessar fyrirgjafir þá erum við með menn sem eru tilbúnir að henda sér fyrir, blokka skot og skalla boltann í burtu. Það er bara skipulagið í liðinu sem gerir okkur kleift að vinna þá.“ Sigurinn þýðir að Víkingar eru nú með sex stiga forskot á toppi deildarinnar eftir ellefu umferðir. Gylfi segir að liðið þurfi þó að halda sér á jörðinni. „Við þurfum bara að halda einbeitingu. Halda áfram að gera það sem við höfum verið að gera og hefur gert það að verkum að við höfum verið að vinna síðustu leiki. Við erum bara með það reynda leikmenn í hópnum að ég held að ef einhver fer að slaka á þá fær hann að heyra það.“ „Við verðum bara að halda áfram að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera. Það skiptir engu máli að vera efstir í deildinni í júní. Við sáum það í fyrra. Þá vorum við langt frá toppnum á einhverju tímabili en þetta snýst um að toppa á réttum tíma og við ætlum að reyna að gera það,“ sagði Gylfi að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Sjá meira