„Keyrðum þetta saman í gegn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. júní 2026 21:42 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gat verið ánægður með sína menn í kvöld. Vísir/Diego Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var eðlilega ánægður með sína menn eftir sterkan 2-0 sigur gegn KR í toppslag Bestu-deildarinnar í kvöld. „
Við bara spiluðum okkar leik. Mér fannst við vera agaðir og mér fannst við vera hrikalega öflugir í varnarleiknum og í pressunni okkar,“ sagði Sölvi í leikslok. „KR-ingar eru virkilega góðir og erfitt að eiga við þá, en ég er virkilega stoltur af mínum mönnum og hvernig þeir tækluðu leikinn og komu inn í hann. Orkustigið var gott og við vorum að vinna boltann trekk í trekk í fyrri hálfleik sérstaklega. Ég er virkilega sáttur með fyrri hálfleikinn og hvernig við komum inn í hann. Við vorum að vinna hann hátt uppi á vellinum og fengum lítið af færum á okkur og mér fannst við vera með yfirhöndina. Það er erfitt að spila á móti KR-ingum. Þú vilt reyna að hafa stjórn á leiknum, án bolta líka, þannig að við þurftum að velja réttu augnablikin til að stíga á þá og setja pressuna. Mér fannst við gera það sérstaklega vel í fyrri hálfleik.“ „Það fer rosalega mikil orka í þetta og við sáum það alveg í seinni hálfleik að menn voru orðnir þreyttir. Kannski skiptir það máli að við vorum búnir að vera í bikarleik fyrir helgi en ekki þeir. En þá féllum við bara aðeins meira til baka, þéttum raðirnar og gerðum skiptingar í seinni háflleik og breyttum í fimm manna vörn. Við erum alveg sáttir með að verjast líka aðeins og mér fannst bara liðsandinn og hvernig menn börðust fyrir hvorn annan skila sigrinum og ég er virkilega stoltur af strákunum. Mig langar líka að nefna áhorfendur. Þeir eru mjög mikilvægir á svona augnablikum. Mikil orka í leiknum og þá standa þeir þétt við bakið á okkur. Líka þegar við byrjum að þreytast. Við keyrðum þetta saman í gegn.“ Þá segir Sölvi það hafa verið afrek út af fyrir sig að halda hreinu gegn þessu KR-liði, en Víkingur er fyrsta liðið til að gera það á tímabilinu. „Já, það er alveg stórt afrek í hverjum leik að halda hreinu. Eins ogég segi þá bara spiluðum við okkar leik og vorum agaðir, þéttir og skipulagðir og gerðum virkilega vel. Ég er bara mjög sáttur með það,“ sagði Sölvi að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira