Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Aron Guðmundsson skrifar 17. júní 2026 07:41 Freyr mætir í Þrándheim og tekur við liði Rosenborgar Freyr Alexandersson hefur verið ráðinn þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Rosenborg og skrifar undir samning við félagið til ársins 2029.
Frá þessu greinir Rosenborg á heimasíðu sinni núna í morgun. Aðeins nokkrir dagar hafa liðið síðan að Frey var sagt upp störfum hjá Brann í sömu deild og var hann ekki lengi án starfs. View this post on Instagram A post shared by Rosenborg Ballklub (@rosenborgballklub) Norskir miðlar greindu frá því í gær að Freyr hefði átt fund með forráðamönnum Rosenborgar í Danmörku á dögunum og að ákvörðunin hvort að af samstarfinu yrði lægi hjá honum. Freyr hefur ákveðið að stökkva á tækifærið. Rosenborg er sigursælasta félag Noregs frá upphafi en er að ganga í gegnum mikla lægð og er í fallsæti sem stendur í norsku úrvalsdeildinni. Alfreð Finnbogason er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. „Ég er þakklátur og stoltur yfir þeim mikla áhuga sem forráðamenn Rosenborgar sýndu mér. Samtöl okkar hafa verið heiðarleg, opinská og innihaldsrík. Ég hef fulla trú á því að saman getum við komið Rosenborg aftur á þann stað sem félagið á heima á,“ segir Freyr í yfirlýsingu Rosenborgar. Staða liðsins núna sé alvarleg og verði að taka á. Alfreð er ánægður með að hafa landað Freysa í starfið. „Við trúum því að hann sé rétti maðurinn fyrir Rosenborg og með sinni reynslu muni hann bæta við miklu hjá okkur.“ Freyr tekur með sér aðstoðarþjálfarann sinn trausta, Jonathan Hartmann til Þrándheims. Sá hefur starfað með Frey í Danmörku, Belgíu og Noregi. Fréttin verður uppfærð.
Norski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Sjá meira