Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 15:12 Daniel Mortensen, Ólafur Ólafsson og Jordan Semple fögnuðu vel þegar Grindavík varð Íslandsmeistari í vor með sigri gegn Tindastóli á Sauðárkróki. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu.
Halla Tómasdóttir forseti veitti Ólafi fálkaorðuna á Bessastöðum í dag, á þjóðhátíðardegi Íslands, en hann var í hópi fjórtán Íslendinga sem hlutu þennan mikla heiður að þessu sinni. Í tilkynningu segir að Ólafur hljóti fálkaorðuna „fyrir forystuhlutverk fyrir sína heimabyggð á krefjandi tímum.“ Ólafur hefur verið fyrirliði og í fararbroddi hjá körfuboltaliði Grindavíkur síðustu ár þegar liðið hefur ekki aðeins þurft að berjast við önnur lið í mestu samkeppni í sögu efstu deildar hér á landi, heldur líka þurft að spjara sig í baráttu við náttúruöflin. Grindavíkurliðið þurfti lengi að æfa og spila utan Grindavíkur, í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesi og rýmingu bæjarins þann 10. nóvember 2023, eins og fjallað var meðal annars um í verðlaunaþáttum þar sem Ólafur lék stórt hlutverk. Þrátt fyrir þessa stöðu tókst Ólafi og félögum, með sterkt bakland og alla Grindvíkinga á bakvið sig, að halda úti einu besta körfuboltaliði landsins sem ekki aðeins sameinaði bæjarbúa heldur náði á endanum að landa Íslandsmeistaratitlinum í vor, eftir þrettán ára bið, með sigri gegn Tindastóli í eftirminnilegu úrslitaeinvígi. Ólafur hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og mun spila áfram með liðinu næstu tvö árin.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Grindavík Fálkaorðan Tengdar fréttir Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Íslandsmeistarar Grindavíkur munu áfram leika undir stjórn þjálfarans Jóhanns Þórs Ólafssonar á næstu leiktíð. Íslenskir lykilmenn hafa einnig framlengt samninga sína og DeAndre Kane verður áfram með liðinu. 5. júní 2026 14:35 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík-Grindavík | Íslandsmeistararnir fá toppliðið í heimsókn LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira
Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Íslandsmeistarar Grindavíkur munu áfram leika undir stjórn þjálfarans Jóhanns Þórs Ólafssonar á næstu leiktíð. Íslenskir lykilmenn hafa einnig framlengt samninga sína og DeAndre Kane verður áfram með liðinu. 5. júní 2026 14:35