Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. júní 2026 12:03 Grímur Atlason vill að Alþingi klári málið. vísir/egill Fjögur ár er síðan nefnd á vegum forsætisráðherra sagði sterkar vísbendingar um að fatlað fólk og fólk með geðrænar áskoranir hefði sætt illri meðferð á stofnunum. Velferðarnefnd Alþingis átti að vinna að næstu skrefum en svo hefur ekkert gerst. Framkvæmdastjóri geðhjálpar segir málið til skammar.
Það var fyrir fimm árum sem Alþingi ályktaði að forsætisráðherra ætti að skipa þriggja manna nefnd til að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda. Forsætisráðherra skipaði nefndina og skilaði nefndin loks skýrslu ráðherrans vorið 2022. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að sterkar vísbendingar væru um að fatlað fólk hafi sætt illri meðferð á stofnunum og mikilvægt sé að slíkt sé dregið fram í dagsljósið. Forsætisráðherra sendi málið til velferðarnefndar Alþingis. „Sem átti síðan að vinna málið og undirbúa hvernig rannsóknarnefndin átti að starfa og við erum enn að bíða,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar en samtökin ásamt Þroskahjálp vöktu athygli á málinu í umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Málið hafi sofnað Aðspurður hvað dagi vinnuna svona svakalega segir Grímur að velferðarnefndirnar sem starfað hafa undanfarin ár hafi í upphafi borið fyrir sig að málið sé umfangsmikið en svo hafi málið einfaldlega sofnað. Grímur bendir á að undir sé hópur fólks sem heyrist alla jafna hvað minnst í í samfélaginu. „Þessi hópur hann bíður, sum þeirra eru þó með einhverja rödd og reyna að tjá sig og tala og hafa meðal annars komið fram í sjónvarpi og sagt sína reynslu. Þannig þetta er stórmál. Það er stundum eins og við flokkum mannréttindi eitthvað eftir því hver á í hlut. Hvort þú sért með fötlun eða ekki með fötlun. Það má ekki.“ Fólk frelsissvipt Hann segir að aðstæður fólks hafi í mörgum tilfellum skelfilegar. Einn var vistaður á fjölda stofnana af þeirri einu ástæðu að hann var blindur. „Það var ekki neitt að honum annað. Hann hefði í dag bara farið í gegnum almennt skólakerfi. Hann var á mörgum stofnunum sem barn og svo sem fullorðinn maður, lengi. Þar til það var brugðist við og hann fékk frelsið sitt eins og maður myndi segja. Svo getum við farið í nútímann. Það er fólk sem er lokað inni svo mánuðum skipti og kemst ekki undir ferskt loft vegna manneklu og fleiri hluta.“ Hann vill að Alþingi standi við orð sín. „Þegar forsætisráðherra og Alþingi samþykki eitthvað og ákveða að gera eitthvað þá, verða þau að gera það.“
Geðheilbrigði Alþingi Heilbrigðismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira