Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 11:42 Gagnaver Amazon í Virginíu í Bandaríkjunum. Ör uppbygging gagnavera fyrir gervigreind hefur leitt til mestu eftirspurnar eftir nýjum jarðefnaeldsneytisorkuverum í aldarfjórðung. Vísir/EPA Málsvarar gervigreindariðnaðarins segja að stjórnvöld í Evrópu verði að gera upp á milli hvort þau vilja ná loftslagsmarkmiðum sínum eða tapa kapphlaupi um þróun gervigreindar við Kína. Evrópa þurfi að brenna jarðefnaeldsneyti til þess að knýja ný gagnaver fyrir gervigreind.
Gríðarlegar fjárhæðir hafa verið fjárfestar í gagnaverum fyrir gervigreind á undanförnum misserum. Hröð uppbygging þeirra hefur valdið stóraukinni eftirspurn eftir nýjum jarðefnaeldsneytisorkuverum, ekki síst í Bandaríkjunum. Evrópusambandið stefnir samhliða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um meira en helming fyrir 2030 og að þrefalda getu gagnavera fyrir árið 2032. Álfan getur hins vegar ekki reitt sig á að þróun í rafhlöðutækni, endurnýjanlegum orkugjöfum og smárra kjarnakljúfa haldi í við gervigreindaræðið ef hún ætlar að ná yfirlýstum markmiðum sínum, að sögn Lex Coors, forseta Gagnaverasambands Evrópu sem talar máli stórfyrirtækja eins og Microsoft, Google og Amazon, Jarðefnaeldsneyti eini möguleikinn til þess að knýja gagnaverin þar til tækni til þess að leysa það af hólmi geti mætt þörfum þeirra. Geri Evrópa þá kröfu til gagnavera að þau verði knúin endurnýjanlegri orku verði álfan undir í samkeppninni. „Það er bara einn sigurvegari í augnablikinu: Kína,“ segir Coors við evrópska blaðið Politico. Fórni ekki markmiðum fyrir hagnað „tæknigosa“ Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun fari út fyrir þau mörk sem ríki heims settu sér í Parísarsamkomulaginu fyrir rúmum áratug á allra næstu árum eða áratugum. Vísindamenn hafa varað við því að hlýnuninni fylgi auknar veðuröfgar, þurrkar, hitabylgjur, flóð svo eitthvað sé nefnt. Umhverfisverndarsinnar taka því fálega í hugmyndir Coors um að knýja stórfellda uppbyggingu gagnavera í Evrópu með því að brenna enn meira af jarðefnaeldsneytinu sem er meginorsök hnattrænnar hlýnunar. „Sú hugmynd að það ætti að fórna enn frekar hægum árangri Evrópusambandsins í loftslagsmálum til þess að brenna meira jarðefnaeldsneyti tæknigosum (e. tech bros) til hagsbóta er fráleit,“ segir talsmaður Grænfriðunga í Evrópu við Politico. Maður heldur á spjaldi sem á stendur „Gagnaver, orkuvampírur“ á mótmælum gegn uppbyggingu gagnavera nærri Atlanta í Bandaríkjunum í fyrra.Vísir/EPA Dan Jørgensen, orkumálastjóri Evrópusambandsins, sagði nýlega að gagnaver væru aðeins velkomin í Evrópu ef þau tækju þátt í orkuskiptum, bæði með að styrkja uppbyggingu endurnýjanlegrar orkuvinnslu og með því að beisla afgangsvarma frá verunum. Orkumálasérfræðingur Umhverfisskrifstofu Evrópu, regnhlífarsamtaka á annað hundrað evrópskra umhverfishópa, hvetur framkvæmdastjórn ESB til þess að halda fast í loftslagsstefnuna. Gagnaver verði að standast ítrustu umhverfiskröfur og þau megi ekki grafa undan orkuskiptum. Auk gríðarlegrar orkuþarfar hafa gagnaver í Bandaríkjunum einnig mætt mótstöðu nágranna sinna sem óttast um drykkjavatnsból sín þar sem verin krefjast mikils vatns til kælingar.
Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Orkumál Gervigreind Tækni Umhverfismál Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira