Golf

Leik frestað á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Mikil þoka er á Shinnecock vellinum þar sem að U.S. Open fer fram.
Mikil þoka er á Shinnecock vellinum þar sem að U.S. Open fer fram. Aðsend mynd: Sigmundur Einar Másson

Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open risamótinu í golfi. Mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar að leik var frestað vegna þoku.

Ekki er vitað á þessari stundu hversu lengi frestunin stendur yfir en fyrstu ráshópar voru farnir af stað í sína hringi. Nú hafa þeir verið beðnir um að yfirgefa völlinn og er von á frekari upplýsingum eftir um það bil tuttugu mínútur þegar að þetta er skrifað.

Gunnlaugur Árni Sveinsson á að hefja sinn hring rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Sigmundur Einar Másson, þjálfari í teymi Gunnlaugs á mótinu er mættur á Shinnecock völlinn í New York fylki og sendi meðfylgjandi mynd á fréttastofu. 

Búist var við því að veður gæti sett strik í reikninginn á mótinu, en þá aðallega hvað varðar vindstyrk. Þokan kemur mönnum kannski örlítið á óvart. 

Veðurspáin fyrir daginn gæti verið betri. Spáð er einhverri rigningu fyrri part dags og svo á að hvessa eftir því sem líður á daginn.

Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi U.S. Open hefst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport.

Aðstæðurnar á Shinnecock Hills vellinum eru erfiðarVísir/Getty




Fleiri fréttir

Sjá meira


×