Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Kristján Már Unnarsson skrifar 18. júní 2026 22:44 Þormóður Ingi Heimisson, bóndi á Sauðadalsá. Húnaflói og Strandafjöll í baksýn. Egill Aðalsteinsson Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en niðurlagning sendanna, 2G og 3G, virðist í fljótu bragði ekki hafa haft mikil áhrif, að minnsta kosti ekki á þéttbýlissvæðunum suðvestanlands. En þegar við ókum norður yfir heiðar og komum yfir á Norðurlandið, þá heyrðum við annað. Norðan Hvammstanga í Húnaþingi vestra, á Sauðadalsá á Vatnsnesi, upplifa bændur verra símasamband. Þar finna íbúar mun. „Já, til hins verra. Við erum í svolitlu brasi oft með að vera í góðu símasambandi og hérna slitna símtöl. Það hefur versnað,“ segir Þormóður Ingi Heimisson, bóndi á Sauðadalsá. Séð yfir bæjarhúsin á Sauðadalsá.Egill Aðalsteinsson -Heldurðu að þetta sé víða hér á Vatnsnesinu? „Já, ég hef heyrt af því. Það sé víðar sem fólk hefur verið í meiri vandræðum en áður með símasambandið,“ svarar bóndinn. Í austursýslunni bendir oddviti Húnabyggðar á símamöstrin austan Blönduóss og segir sambandið einnig hafa versnað í þéttbýli. Oddviti Húnabyggðar bendir á fjarskiptamöstrin við Blönduós.Egill Aðalsteinsson „Ég finn bara breytingu innanbæjar á Blönduósi. En hún er víða inn til sveita og úti á Skaga. Þetta hefur versnað til muna,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. „Auðvitað vilja bara allir vera í símasambandi heima hjá sér. Við erum í vandræðum bara hérna heima,“ segir Þormóður á Sauðadalsá. Oddviti Húnabyggðar segir gömlu sendana hafa dregið mun lengra en þeir nýju geri. Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Fjarskiptamöstrin á Hnjúkunum suðaustan Blönduóss sjást fyrir aftan. Egill Aðlsteinsson „Eins og Fjarskiptastofnun, þeir líta ekki á GSM-símakerfið okkar sem öryggisbúnað. Það er Tetra að þeirra sögn. En að sjálfsögðu er síminn okkar öryggistæki, þegar að við erum úti á þjóðvegum og vinnandi í landbúnaði til sveita,“ segir Guðmundur Haukur. „Það þyrfti að skoða þessi mál betur og kanna hvort það væri ekki hægt að laga þetta. Þetta er öryggisatriði að vera í góðu símasambandi,“ segir bóndinn á Vatnsnesi. Spjallað á veröndinni á Sauðadalsá.Egill Aðalsteinsson „Fólk talar um þetta sín á milli og það eru svæði sem í rauninni eru bara skelfilega í sveit sett,“ segir oddvitinn. -En er eitthvað hægt að gera í þessu? „Já, það hlýtur nú að vera hægt að laga þetta eitthvað þannig að við séum í betra sambandi. Ég trúi ekki öðru,“ svarar Vatnsnesbóndinn Þormóður Ingi. Frá Vatnsnesi í Húnaþingi vestra.Egill Aðalsteinsson -En verður þessu nokkuð snúið? „Ég er ekki að sjá það, svarar Guðmundur Haukur. „En það sem þarf klárlega að gerast, ef að 4G og 5G er með minni drægni heldur en eldri sendarnir, þá þarf bara að vaða í það að fjölga þeim og ekki seinna en strax,“ segir forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Fjarskipti Húnaþing vestra Húnabyggð Öryggi á ferðamannastöðum Umferðaröryggi Landbúnaður Tækni Byggðamál Síminn Sýn Nova Björgunarsveitir Lögreglan Heilbrigðismál Tengdar fréttir Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl. 17. júní 2026 13:27 Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Starlink-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án símasambands. 29. apríl 2026 19:26 Loka bráðum á 3G-kerfið Fjarskiptastofa, Neyðarlína og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á því að senn verður lokað fyrir 3G-farsímakerfi. Lokanir hefjast í næstu viku. 27. mars 2026 14:38 Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Slysavarnafélagið Landsbjörg lýsir áhyggjum af dvínandi fjarskiptaöryggi Íslendinga þar sem slökkt hefur verið á hluta 2G og 3G farsímasenda. Svæði sem áður voru vel tengd séu nú með öllu sambandslaus. Félagið skorar á stjórnvöld að leggjast með sér á árarnar og viðhalda talstöðvakerfi landsins. 12. desember 2025 10:18 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Sjá meira
Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl. 17. júní 2026 13:27
Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Starlink-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án símasambands. 29. apríl 2026 19:26
Loka bráðum á 3G-kerfið Fjarskiptastofa, Neyðarlína og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á því að senn verður lokað fyrir 3G-farsímakerfi. Lokanir hefjast í næstu viku. 27. mars 2026 14:38
Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Slysavarnafélagið Landsbjörg lýsir áhyggjum af dvínandi fjarskiptaöryggi Íslendinga þar sem slökkt hefur verið á hluta 2G og 3G farsímasenda. Svæði sem áður voru vel tengd séu nú með öllu sambandslaus. Félagið skorar á stjórnvöld að leggjast með sér á árarnar og viðhalda talstöðvakerfi landsins. 12. desember 2025 10:18