Atvinnulíf

Eins og James Bond: Huggu­legur, ferðast, leysir vanda­mál og drekkur martini

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og stofnandi Kjölur ráðgjöf, notar gamaldags vekjaraklukku til að vakna á morgnana. Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði hann að hugleiða alla morgna, sem hann segir góða jarðtengingu inn í daginn.
Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og stofnandi Kjölur ráðgjöf, notar gamaldags vekjaraklukku til að vakna á morgnana. Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði hann að hugleiða alla morgna, sem hann segir góða jarðtengingu inn í daginn. Vísir/Vilhelm

Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég virka best í rútínu og reyni að vakna milli 6:30 og 7:00 alla virka daga. 

Ég er frekar gamaldags og vakna ekki við símann heldur er með gamaldags útvarpsvekjara sem vekur mig á réttum tíma.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Á virkum dögum byrja ég alla morgna á góðum kaffibolla og rúlla í gegnum fréttir og tölvupóstinn. Ég fer í ræktina með vinkonu minni tvo til þrjá daga vikunnar. 

Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði ég á að hugleiða á morgnana og það hefur reynst vel til þess að ná góðri jarðtengingu inn í daginn.“

Ef þú værir karakter úr frægri bíómynd, hver værir þú þá?

„Klárlega James Bond. Huggulegur og vel til hafður, ferðast mikið og leysir flest vandamál af yfirvegun með martini í hönd.“

Í skipulagi finnst Brynjólfi best að halda utan um alla dagskrá í einu dagatali: Bæði verkefni sem snúa að vinnunni og það sem gera þarf í einkalífinu. Annars er hætta á að eitthvað skolist til.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er nýbúinn að stofna ráðgjafarfyrirtæki, Kjöl Advisory, sem á hug minn allan þessa dagana. Eftir ellefu ár í bankageiranum fannst mér tímabært að láta gamlan draum rætast og fara í sjálfstæðan rekstur. Það er áhætta fólgin í því að taka þetta stökk og treysta alfarið á sjálfan sig en á sama tíma ótrúlega spennandi.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég þrífst því best í góðri rútínu. Mér finnst best að halda utan um alla dagskrá, hvort sem hún er vinnutengd eða persónuleg, í sama dagatalinu. Annars er hætta á að þetta skolist allt til.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er frekar kvöldsvæfur og er búinn með kvöldrútínuna og kominn upp í rúm um klukkan tíu öll kvöld og sofna yfirleitt á næsta klukkutímanum nema spennandi bók eða þáttasería nái að halda mér vakandi eitthvað lengur.“


Tengdar fréttir

Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.

Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg!

Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna.

Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn.

Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna

Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×