Sport

Sakar þýska lands­liðið um ó­heiðar­leika

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, heldur hér á bolta sem Þjóðverjinn Joshua Kimmich vill endilega koma sem fyrst í leik á ný.
Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, heldur hér á bolta sem Þjóðverjinn Joshua Kimmich vill endilega koma sem fyrst í leik á ný. Getty/Robert Cianflone

Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, gagnrýndi það sem hann kallaði skort á heiðarlegum leik frá Þýskalandi í 2-1 tapi liðs síns á heimsmeistaramótinu um helgina.

Faé var reiður eftir að varnarmaður hans, Wilfried Singo, setti boltann út af þar sem hann var meiddur en Nathaniel Brown, vinstri bakvörður Þjóðverja, ákvað að gefa Fílabeinsströndinni ekki boltann aftur og hóf þess í stað þýska sókn með innkasti.

„Ég sagði honum [Brown] að sýna smá auðmýkt,“ sagði Faé við fréttamenn eftir leikinn. „Hann átti frábæran leik og hann þarf ekki að vera með leiðindi við okkur af því að hann er að tapa eða staðan er 1-1 og hann vill vinna.“

„Við hefðum viljað sjá meiri heiðarlegan leik frá Þýskalandi. Við hefðum viljað að þeir hefðu gefið okkur boltann aftur þegar Singo meiddist. Þeir eru mikil fótboltaþjóð og við tökum þá til fyrirmyndar, svo ég varð fyrir vonbrigðum með skort þeirra á heiðarlegum leik,“ sagði Faé.

Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, ræddi við Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfara Þýskalands, eftir leikinn og sagði honum örugglega sína skoðun líka þar.Getty/Megan Briggs

Fílabeinsströndin virtist vera skrefi á undan Þýskalandi allan fyrri hálfleikinn á laugardag og stóran hluta af þeim seinni, þar sem mark miðjumannsins Franck Kessié í fyrri hálfleik þaggaði niður í þýskum stuðningsmönnum um langa hríð.

En þýski hluti áhorfendastúkunnar, sem var uppseld, sprakk úr fögnuði þegar Deniz Undav skoraði sigurmarkið, hans annað í leiknum.

„Bæði lið áttu skilið að vinna og fengu færi til að vinna leikinn,“ sagði Faé. „Vel gert hjá Þýskalandi. Þeir unnu leikinn vegna reynslu sinnar. Við áttum frábæran leik og ég er virkilega stoltur af því hvernig leikmenn mínir spiluðu gegn einu af sigurstranglegustu liðum keppninnar. Við verðum að nýta þetta tap það sem eftir er af mótinu,“ sagði Faé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×