„Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Kristján Már Unnarsson skrifar 22. júní 2026 22:11 Gleðin við völd hjá Beini Johannesen, lögmanni Færeyja, og Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í Þórshöfn í dag. Kringvarpið/Gestur Lómstein Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, komu í dag til Færeyja í þriggja daga opinbera heimsókn í boði lögmanns Færeyja og eiginkonu hans. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir Kringvarps Færeyja frá Þórshöfn í dag. Rauður dregill hafði verið lagður út og íslenski fáninn dreginn að húni á Þinganesi, aðsetri landsstjórnarinnar, þegar forseti Íslands og fylgdarlið renndu í hlað. Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason kynnt fyrir helstu forystumönnum Færeyja.Kringvarpið/Gestur Lómstein Þetta er fyrsta opinbera heimsókn Höllu sem forseta Íslands til Færeyja. Beinir Johannesen, nýkjörinn lögmaður Færeyja, fylgdi henni um gömlu byggingarnar á Þinganesi. Þar var hún kynnt fyrir helstu ráðamönnum Færeyja, þar á meðal oddvitum stjórnarflokkanna, áður en hún og lögmaðurinn héldu til fundar. „Ég held að það sem skipti mestu máli til að tryggja vinabönd á milli þjóða er að hittast í eigin persónu og kynnast,“ sagði Halla í viðtali við Kringvarpið. Gengið um þröng stræti Þinganess, þar sem landsstjórn Færeyja situr.Kringvarpið/Gestur Lómstein „Og ég vona að ég fari aftur heim og finni sömu tilfinningu og ég fann þegar ég kom til Færeyja fyrir tuttugu árum og aftur í dag, að það er að mér finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum. Og ég vona að okkur líði alltaf þannig, Færeyingum og Íslendingum, að við séum heima hvor hjá öðrum. Og að við getum stundað viðskipti og við getum staðið saman gegn áskorunum og nýtt tækifæri, búið til velsæld, byggt á heilbrigðu hafi og góðum viðskiptaháttum. Og þarna held ég að ef að þessi vinabönd eru traust þá eru okkur ávallt allir vegir færir,“ sagði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, en meira má heyra hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Forseti Íslands Færeyjar Halla Tómasdóttir Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, munu halda í opinbera heimsókn til Færeyja dagana 22. til 24. júní. 19. júní 2026 11:01 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira
Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, munu halda í opinbera heimsókn til Færeyja dagana 22. til 24. júní. 19. júní 2026 11:01