Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. júní 2026 12:03 Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Vísir/Lýður Valberg Fjöldi myndbanda þar sem má sjá glæfralegan akstur í umferðinni er áhyggjuefni að sögn lögreglu, sem minnir ökumenn á að nú fari í hönd einn umferðarþyngsti tími ársins á vegum landsins. Tvö banaslys urðu í umferðinni í síðustu viku.
Rætt var við Halldór Guðmundsson mótorhjólamann á Vísi í síðustu viku en hann var á leið til Akureyrar á mótorhjóli sínu þegar hann mætti stærðarinnar pallbíl sem reyndi framúrakstur á óbrotinni línu í blindbeygju. Ökumaðurinn sveigði að endingu út af veginum svo betur fór en á horfðist en myndband af atvikinu hefur vakið gríðarlega athygli. Myndbandið er ekki það eina sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum af hættulegum framúrakstri undanfarið en í síðustu viku náðist annað myndband af ökumanni Range Rover jeppa þar sem hann tók fram úr bílalest og urðu ökumenn tveggja bíla úr gagnstæðri átt að aka út af veginum til að forða sér frá slysi. Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglu segir lögreglu taka slíkan akstur mjög alvarlega en í síðustu viku urðu tvö banaslys í umferðinni, eitt við Reykholt og annað við Vík í Mýrdal. „Það er vont að sjá þegar ökumenn eru að hegða sér svona, sérstaklega út á þjóðvegum þar sem er verið að taka fram úr á óbrotinni línu og stofna þar með lífi og limum fólks sem er í ökutækjum í gagnstæðri átt í hættu, þannig að við tökum þessu mjög alvarlega og fordæmum þessa aksturshegðun.“ Árni minnir á að nú sé sá tímapunktur ársins þar sem mesta álagið er á vegakerfinu. Ökumenn þurfi að gæta vel að sér og virða hámarkshraða. „Því miður þá höfum við líka verið að sjá þessi myndbönd sem hafa verið í dreifingu þar sem ökumenn eru að valda bæði sjálfum sér og öðrum hættu með því að taka þennan glæfraframúrakstur. Þannig við biðlum til allra um að aka varlega og taka mið af aðstæðum, síðan er hinn anginn að ef ökumenn verða vitni að svona akstri að tilkynna það þá til lögreglu sem fyrst.“ Lögregla merki sérstaklega mikla óþolinmæði meðal ökumanna nú. „Það er bara gömul saga og ný að fólk er að keyra of hratt. Í gær voru ökumenn teknir hérna innan höfuðborgarsvæðisins þar sem er 80 kílómetra hámarkshraði og við vorum að stöðva menn á 140 kílómetra hraða á þessum vegum, þannig við þekkjum þetta og þetta er bara ekki gott.“
Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira