Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 14:02 Laufey Lín á tónleikum sínum í Kórnum í mars. Vísir/Viktor Freyr Söngkonan Laufey Lín er lofsungin af starfsmönnum kínverska sendiráðsins á Íslandi. Laufey Lín er stödd í Kína þessa dagana á tónleikaferðalagi. „
Við óskum Laufeyju Lín til hamingju með að hafa nýlega slegið í gegn í Kína. Þar sem hún er hálfkínversk gætum við ekki verið stoltari af velgengni hennar. Við hlökkum til frekari samskipta tónlistar og menningar milli Kína og Íslands,” segir í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins. Þar kemur fram að Laufey hafi spilað í fjórum kínverskum borgum, Peking, Sjanghæ, Guangzhou og Chengdu, og að uppselt hafi verið á alla tónleikana. „Þetta voru stærstu tónleikar hennar í Kína til þessa,“ segir í færslunni og að áhorfendur hafi verið heillaðir. „Einn aðdáandi skrifaði eftir sýninguna: „Ég hef farið á tónleika í yfir tuttugu ár. Ég man ekki hvenær ég sá síðast jafn einlægan flytjanda á sviði og þar sem hvert einasta lag var svona gott.“ Á leið til Ástralíu Á heimasíðu Laufeyjar kemur fram að Laufey haldi næst til Ástralíu, þar sem hún heldur átta tónleika í júlí, og svo til Nýja-Sjálands í ágúst og þaðan til Brasilíu og Mexíkó. Ekki eru fleiri tónleikar skipulagðir á árinu samkvæmt heimasíðunni. Laufey hélt tónleika á Íslandi í mars í Kórnum í Kópavogi. Uppselt var á tvenna tónleika.
Laufey Lín Kína Íslendingar erlendis Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira