Laufey Lín

Fréttamynd

Lauf­ey sigursælust og Todmobile heiðruð

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu við hátíðlega athöfn. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum Friðriks Ómars. Laufey Lín var hlutskörpust með fern verðlaun, Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin og hljómsveitinni Todmobile voru veitt heiðursverðlaun.

Tónlist
Fréttamynd

„Þetta var alltaf stóri draumurinn“

„Það er eiginlega bara í dag sem ég er að ná að setjast niður með þessu öllu saman,“ segir förðunarfræðingurinn Auður Jónsdóttir sem hefur verið búsett í Los Angeles síðastliðinn áratug. Síðastliðinn mánuð hefur hún fylgt Laufeyju Lín í Evróputúr stjörnunnar og farðað hana sem hún segir algjört draumaverkefni. Blaðamaður ræddi við Auði um þetta spennandi verkefni og tímamót í hennar lífi.

Lífið
Fréttamynd

„Takk fyrir mig Ís­land, mitt drauma­land“

Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Kórinn tvívegis með stórkostlegum tónleikum um helgina á síðasta stoppinu á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu. Hún segir það sannan heiður að fá að spila á Íslandi, draumalandi sínu og vildi óska þess að hún gæti sagt yngri Laufeyju frá helginni.

Tónlist
Fréttamynd

Áttu ó­gleyman­legt augna­blik þegar Lauf­ey sá þær í salnum

Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu.

Lífið
Fréttamynd

Súperstjarna tískuheimsins klæddi Lauf­eyju

Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Eins og best verður á kosið í heiminum“

Yfir fimm hundruð manns koma að undirbúningi og annarri vinnu í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina og hefur undirbúningur staðið yfir í meira en ár að sögn tónleikahaldara. Þá er búið að opna svokallað Laufeyjarland í Smáralind.

Innlent
Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“

Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.

Tónlist
Fréttamynd

Lauf­ey og Collab í eina sæng

Súperstjarnan Laufey Lín er nýjasti samstarfsaðili íslenska kollagendrykksins Collab. Hún segist alltaf byrja Íslandsdvölina á því að fá sér ískaldan Collab og samstarfið hafi verið skemmtilegt.

Lífið
Fréttamynd

Júnía Lín frum­sýndi kærastann

Listræni stjórnandinn Júnía Lín Jónsdóttir frumsýndi kærasta sinn í gær, á sjálfan valentínusardaginn, en hún virðist hafa fundið ástina í örmum bandarísks rekstrarstjóra og tölvunarfræðings að nafni Alex Ashton. Hann rataði á „30 under 30“-lista Forbes í lok síðasta árs.

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar

Feðginin Aura V og Harold Simmons II, betur þekktur undir listamannsnafninu Fyütch, unnu Grammy-verðlaun á dögunum fyrir bestu barnaplötu ársins fyrir plötuna Harmony. Aura V, sem er átta ára gömul, varð þannig yngsti handhafi Grammy-verðlauna í sögunni og sló þannig met Blue Ivy Carter. Aura V nýtti tækifærið í þakkarræðu sinni til að hrósa íslensku tónlistarkonunni Laufeyju og óskaði henni til hamingju með sín verðlaun.

Lífið
Fréttamynd

„Hún er komin til að vera“

Doktor í tónlistafræðum og gangrýnandi telur alveg ljóst að Laufey Lín sé ekki „einhver einsmellungur“ eftir að íslenska söngkonan hlaut í gær sín önnur Grammy-verðlaun. Það hafi verið frábært af hennar hálfu að lofa listnám sitt í þakkarræðunni.

Tónlist
Fréttamynd

Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur

Bad Bunny, Lady Gaga, Kendrick Lamar, Lola Young og Olivia Dean voru meðal þeirra sigursælustu á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í nótt. Laufey Lín Jónsdóttir nældi sér jafnframt í sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötuna A Matter of Time. 

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun

Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024.

Lífið
Fréttamynd

Tvö ár af ást hjá Charlie og Lauf­eyju

Laufey Lín súperstjarna mætti með sinn heittelskaða Charlie Christie á Golden Globe hátíðina í fyrradag. Hjúin, sem hafa nú verið saman í tvö ár, virtust ástfangin upp fyrir haus saman á rauða dreglinum og nutu sín í botn á þessu einstaka stefnumóti.

Lífið
Fréttamynd

Rugluðust á Lauf­eyju og „Megan“

Kurteisisleg viðbrögð Laufeyjar Línar Jónsdóttur við því þegar ljósmyndarar kölluðu hana „Megan“ á rauða dreglinum fyrir Golden Globe verðlaunahátíðina hefur vakið athygli erlendra miðla.

Tónlist
Fréttamynd

Lauf­ey á landinu

Heimsfræga tónlistarkonan Laufey er komin heim til Íslands fyrir jólin. Hún hefur kíkt á tónleika og gætt sér á pylsu.

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey á lista Obama

Ár hvert birti Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lista yfir tónlist, bækur og kvikmyndir sem stóðu upp á árinu. Lag eftir íslensku tónlistarkonuna Laufey er á listanum í ár.

Lífið
Fréttamynd

„Rosa­lega stórt“ að fá aftur til­nefningu

Tónskáld og poppsérfræðingur segir það risastóra viðurkenningu fyrir tónlistarkonuna Laufeyju Lin að fá tilnefningu fyrir poppplötu ársins ári eftir að hún sigraði í sama flokki Grammy-verðlaunanna. Með þessu festi Laufey sig í sessi á stjörnuhimninum í tónlistarlífi utan landsteinanna.

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey til­nefnd til Grammy-verðlauna

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er tilnefnd til Grammy-verðlauna í flokki heðfbundinnar popptónlistar fyrir breiðskífu sína A Matter of Time. Í flokknum etur hún kappi við poppgoðsagnir á borð við Elton John, Lady Gaga og Börbru Streisand.

Lífið