„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. mars 2026 10:43 Jeff Goldblum er greinilega mikill aðdáandi Laufeyjar og virtist afar ánægður með að fá að troða upp með henni. Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.
Laufey Lín hóf tónleikaferðalag sitt til að fylgja eftir plötunni A Matter of Time þann 15. september 2025, spilaði fjölda tónleika í Bandaríkjunum síðasta haust og hélt ferðalaginu áfram um Evrópu í febrúar og lýkur þeim á Íslandi um miðjan mars. Fyrstu tónleikar hennar á Bretlandseyjum voru í höllinni Co-op Live í Manchester í gærkvöldi. Sjá einnig: „Hún er komin til að vera“ Eitt sérkenni á tónleikum Laufeyjar á ferðalaginu er að um miðbik tónleikanna tekur hún óvænt lag, annað hvort lag eftir einhvern annan eða þá með óvæntum gesti. Á tónleikum hennar í New York í október mættu til dæmis Lin-Manuel Miranda og PinkPantheress. En aðdáendur Laufeyjar voru samt slegnir þegar hún kynnti gest gærkvöldsins inn. Hún sagðist ætla að spila eitthvað sem hún hefði ekki spilað lengi en að hún vildi ekki sjálf spila á píanóið. „Bara ef ég þekkti píanóleikara,“ sagði hún og kynnti Goldblum inn við gríðarleg fagnaðarlæti. Laufey og Jeff einbeitt í Manchester. Heiður og forréttindi Goldblum, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Júragarðsmyndunum og lék nýverið Galdrakarlinn í Oz í Wicked-söngleikjamyndunum tveimur, er jafnframt reyndur jazzpíanóleikari og hefur gefið út fjórar plötur með Mildred Snitzer-orkestrunni. Goldblum settist við píanóið og lék undir meðan Laufey söng „Misty“ við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. Þegar lagið kláraðist þakkaði Laufey honum fyrir að spila með henni en Goldblum svaraði með gullhömrum: „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð að mínu auðmjúka mati,“ sagði Goldblum þá um tónlistarkonuna íslensku og gekk af sviðinu. „Jæja, þetta var skemmtilegt,“ sagði Laufey svo áður en hún hélt áfram með tónleikana. Eftir tónleikana tóku þau greinilega myndir af sér saman því Goldblum birti á Instagram myndir af þeim saman og skrifaði við hana: „Heiður og forréttindi að fá boð Laufeyjar á Manchester-tónleika hennar og flytja „Misty“ - eftirlætislag okkar beggja. 🫶🏻💐“ „ÞÚ ERT BESTUR!!!!! 🤍“ skrifaði Laufey í ummælum. View this post on Instagram A post shared by Jeff Goldblum (@jeffgoldblum)
Laufey Lín Tónlist Bretland Hollywood Tengdar fréttir Laufey og Collab í eina sæng Súperstjarnan Laufey Lín er nýjasti samstarfsaðili íslenska kollagendrykksins Collab. Hún segist alltaf byrja Íslandsdvölina á því að fá sér ískaldan Collab og samstarfið hafi verið skemmtilegt. 2. mars 2026 18:00 Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Alysa Liu varð í kvöld Ólympíumeistari í listdansi á skautum og batt þar með enda á tuttugu ára verðlaunaþurrð bandarískra kvenna í þessari grein. Hún varð líka fyrsta bandaríska konan til að vinna Ólympíugull á listskautum í 24 ár. 19. febrúar 2026 22:31 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Laufey og Collab í eina sæng Súperstjarnan Laufey Lín er nýjasti samstarfsaðili íslenska kollagendrykksins Collab. Hún segist alltaf byrja Íslandsdvölina á því að fá sér ískaldan Collab og samstarfið hafi verið skemmtilegt. 2. mars 2026 18:00
Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Alysa Liu varð í kvöld Ólympíumeistari í listdansi á skautum og batt þar með enda á tuttugu ára verðlaunaþurrð bandarískra kvenna í þessari grein. Hún varð líka fyrsta bandaríska konan til að vinna Ólympíugull á listskautum í 24 ár. 19. febrúar 2026 22:31