Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 22:16 Í úrskurðinum kemur fram að viðskiptavinurinn hafi keypt eyrnahreinsinn í vefverslun söluaðilans í maí 2025 á 5.990 krónur. Myndin er af eyrnahreinsi með myndavél sem tengist fréttinni ekki beint. Getty Söluaðila hefur verið gert að afhenda viðskiptavini nýjan eyrnahreinsi sem búinn er myndavél, eftir að ekki tókst að hlaða hreinsinn sex dögum eftir kaupin og hann metinn ónothæfur.
Þetta er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Í úrskurðinum kemur fram að viðskiptavinurinn hafi keypt eyrnahreinsinn í vefverslun söluaðilans í maí 2025 á 5.990 krónur. Viðskiptavinurinn upplýsti svo verslunina um það í tölvupósti sex dögum síðar að ekki væri hægt að hlaða tækið og það því ónothæft. Í svörum frá versluninni var viðskiptavininum boðið endurgreiðsla eða nýtt tæki sem hann þáði. Honum var þá leiðbeint af versluninni hvernig ætti að skila bilaða tækinu sem hann gerði. Ekkert varð hins vegar af afhendingu á nýjum eyrnahreinsi þrátt fyrir ítrekaðar óskir. Viðskiptavinurinn leitaði þá til kærunefndarinnar þar sem hann krafðist þess að fá sendan nýjan eyrnahreinsi. Í niðurstöðukafla úrskurðarins segir að með vísun í lög um neytendakaup hvíli í þessu máli á versluninni að sýna fram á að tækið hafi ekki verið gallað við afhendingu. Verslunin kaus að láta málið ekki til sín taka fyrir nefndinni. Með hliðsjón af gögnum var það mat kærunefndarinnar að versluninni bæri að afhenda viðskiptavininum nýjan eyrnahreinsi með myndavél, án kostnaðar og óhagræðis fyrir viðskiptavininn. Söluaðilanum er jafnframt gert að greiða 35 þúsund krónur vegna málskostnaðar.
Úrskurðar- og kærunefndir Neytendur Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Íslenska þjóðin getur ekki átt fiskveiðiheimildir að mati Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira