Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Telma Tómasson skrifar 28. júní 2026 21:02 Áskell Heiðar Ásgeirsson er framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna sem haldið verður í Skagafirði um næstu helgi en mótið var síðast haldið í Víðidal fyrir tveimur árum. Vísir/Vilhelm Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins.
Landsmót hestamanna er haldið annað hvert ár, að þessu sinni að Hólum í Hjaltadal í Skagafirði og hefst viðburðurinn sunnudaginn 5. júlí. Undirbúningur hefur staðið yfir mánuðum saman, hundruð keppenda og sýnenda mæta til leiks, þá viku sem mótið er, og skráðir hestar eru alls um níu hundruð. Gestir fjölmenna jafnan á þessa eina stærstu samkomu áhugamanna um íslenska hestinn. „Það sem er kannski svolítið einkennandi fyrir þetta mót hjá okkur er að fólk dvelur lengi, kemur og er hérna hjá okkur í viku flestir. Þegar þetta nær hámarki á föstudag eða laugardag þá geri ég ráð fyrir að hér verði kannski á bilinu 6-8000 gestir,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri Landsmóts. Um fjórðungur gestanna erlendis frá Að hans sögn verður töluvert af erlendum gestum. „Það hefur haldist nokkuð lengi að þeir eru 20-25% gestanna og það er það sama og við erum að sjá í miðasölunni hjá okkur. Flest híbýli sem eiga að hýsa mannskapinn eru fullbókuð og hesthúsin í Skagafirði eru stappfull meðan mesta álagið er. Skipulagning hefur að sögn gengið vel og gert ráð fyrir að keppendur og aðstandendur þeirra fari að streyma norður um miðja vikuna. Frábær aðstaða og samningaviðræður standa yfir við veðurguðina „Æfingatímar hefjast á miðvikudaginn og við ætlum auðvitað að vera klár með allt handa þeim þá. Vellirnir eru auðvitað búnir að vera á mikilli notkun upp á síðkastið, bæði úrtökur og kynbótasýningar og svo auðvitað þetta kennslusvæði Háskólans á Hólum.“ „Þetta er auðvitað svæði sem er í notkun allt árið og svo var mikið byggt upp hérna fyrir mótið 2016. Við búum að því að það er frábær aðstaða hérna á vallarstæðinu öllu saman þannig að við verðum klár þegar keppenur og gestir fara að streyma að. Samningaviðræður við veðurguðina hafa staðið yfir um nokkurn tíma, en endanlegar niðurstöður ekki enn ljósar. „Ég hef svarað því til við fólk sem hefur talað um veðrið að ef þú ætlar að dvelja einhvers staðar á Íslandi í heila viku þá sérðu nú yfirleitt allan skalann. Vonandi verðum við meira með gott veður heldur en slæmt,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdatsjóri Landsmóts hestmanna.
Landsmót hestamanna Hestar Skagafjörður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira