„Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Sindri Sverrisson skrifar 29. júní 2026 20:31 Elvar Már Friðriksson er klár í tvo mikilvæga leiki með íslenska landsliðinu í undankeppni HM. vísir/Sigurjón Elvar Már Friðriksson mun líklega á næstu dögum ákveða næsta skref sitt á körfuboltaferlinum, eftir dvöl sína í Póllandi og óvænt stopp á Tenerife í lok leiktíðar. Það skref mun hann taka með fjölskyldu sinni sem dvalið hefur á Íslandi í vetur.
Elvar er jafnframt að undirbúa sig fyrir komandi leiki með Íslandi, í undankeppni HM í körfubolta, en liðið mætir Ítalíu í Laugardalshöll á fimmtudag og getur með sigri þar tryggt sig inn á lokastig undankeppninnar. Viðtalið við Elvar má sjá hér að neðan. Klippa: Elvar Már með spennandi tilboð Elvar segir það aldrei hafa komið til greina að snúa heim og spila í Bónus-deildinni næsta vetur. Hann hefur komið víða við á atvinnumannaferlinum en sífellt tekið skref upp á við og lék nú síðast með Tenerife í nokkrum leikjum, í spænsku úrvalsdeildinni. Nokkur spennandi tilboð á borðinu „Þetta var mjög skemmtilegt og gaman að prófa þetta „level“ aðeins. Eina bestu deild Evrópu. Leikstjórnandinn þeirra meiddist svo ég gat komið og spilað tvo leiki en svo kom hann til baka svo ég var með minna hlutverk í úrslitakeppninni. En þetta var skemmtilegt á heildina litið,“ segir Elvar en hann ræddi við Vísi á landsliðsæfingu í Ásgarði í dag. Elvar lék með pólska liðinu Anwil Wloclawek í vetur og fór svo til liðs við Tenerife eftir að tímabilinu í Póllandi lauk. Núna er hann samningslaus og getur eflaust valið úr spennandi kostum en vill sem minnst um það segja að svo stöddu. „Það er eitthvað sem ég er að skoða og mun líklega velja úr á næstunni. Það eru nokkur spennandi tilboð sem ég er að horfa á og reyna að finna út hvað kemur sér best fyrir ferilinn og fjölskylduna. Það hefur aldrei staðið til [að snúa heim í íslensku deildina núna]. Ég er búinn að vinna mig hægt og rólega upp stigann í ein sjö ár og sé enga ástæðu til að hætta núna þegar ég er kominn á þetta stig. Ég ætla að halda áfram og er ekkert að horfa heim strax. Það kemur bara í ljós á næstu dögum hvað verður. Það er ekkert skothelt í þessu,“ segir Elvar. Með annað barn á leiðinni Hann segir mikilvægt að finna góðan kost fyrir bæði feril sinn og fjölskylduna en kona hans og sonur bjuggu á Íslandi í vetur, þar sem sonurinn byrjaði í 1. bekk í grunnskóla. „Svo erum við að eignast annað barn á næstu vikum og planið er að við flytjum svo öll út saman. Þannig að þetta verður aðeins heilbrigðara fjölskyldulíf. Mér er eiginlega sama hvar það verður, ef maður getur verið með fjölskylduna hjá sér. Þá er allt lífið þægilegra. Við stefnum því á það að vera saman í vetur. Maður getur verið á frábærum stað í Póllandi, eða Tenerife, en það er alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar. Það er því fyrsta forsenda, að geta verið með þau hjá mér,“ segir Elvar. „Þetta verða tveir úrslitaleikir“ Eins og fyrr segir eru afar mikilvægir landsleikir framundan, gegn Ítalíu á fimmtudagskvöld og við Bretland í Manchester á sunnudag. Ísland þarf sigur í að minnsta kosti öðrum leikjanna til að falla ekki úr keppni, og tekur með sér alla sigra á lokastig undankeppninnar, komist liðið þangað. Liðið vann Ítalíu á útivelli og heimasigur gegn Litháen í vetur. „Þetta eru úrslitaleikir. Við erum búnir að koma okkur í þá stöðu að eiga möguleika og vinna tvo stóra sigra, en þeir munu ekki telja neitt ef við vinnum ekki annan hvorn leikinn í þessum glugga. Við verðum að gera allt til að láta þá telja. Þetta verða tveir úrslitaleikir og spennandi að sjá hvernig við mætum tilbúnir í þá. Það kæmi okkur í mjög góða stöðu upp á að komast á HM, að vinna annan eða báða leikina,“ segir Elvar.
HM 2027 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík-Grindavík | Íslandsmeistararnir fá toppliðið í heimsókn LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira