„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júní 2026 18:27 Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segir að ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands í viðræðum við ESB. Vísir/Anton Brink Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segist ætla að greiða atkvæði gegn framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Ýmsum málum í sjávarútvegi þurfi að ganga frá innanlands áður en sótt er um aðild að ESB og ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands.
Sigurjón segir að ef Íslendingar fari með óbreytt kerfi inn í Evrópusambandið sé ekkert sem komi í veg fyrir að erlend fyrirtæki geti keypt upp „íslensku sjávarútvegsrisana.“ Erlendar matvælakeðjur geti keypt upp stærstu sjávarútvegsfyrirtækin og flutt fisk óunninn úr landi til vinnslu erlendis. Fyrirtækin geti því alveg eins hætt allri vinnslu hérlendis. Líklegt sé að aðrir stjórnarþingmenn séu sömu skoðunar og hann, að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Hann segir fólk á göngum Alþingis treysta þjóðinni til að taka ákvörðun í ágúst og hvernig sem niðurstöðurnar fari „þá þurfum við að halda áfram.“ Nær sé að gengið sé frá ýmsum málum í sjávarútvegi áður en sótt er um aðild að ESB. Gagnsæi þurfi að ríkja varðandi helstu útflutningsafurðir þjóðarinnar. Verðlagning og upplýsingar um útflutning íslensks fisks séu aðgengilegar og að fiskur sé ekki fluttur úr landi nema innlendir aðilar geti boðið í hann. Hann segir Íslendinga verða að horfast í augu við smæð sína og ekki megi ofmeta samningsstöðu þjóðarinnar. „Við erum bara 0,08% af fjölda íbúa Evrópusambandsins og við erum ekki að fara að breyta miklu þar.“ Frekar ættu íslensk stjórnvöld að tryggja hagsmuni landsins með breytingum innanlands en að semja um sérlausnir við ESB. Ákveðin skref hafi verið tekin í vor í átt að auknu gagnsæi en enn þurfi að bæta úr ýmsu. Sérkennilegt sé að Skatturinn veiti honum, formanni fjárlaganefndar, ekki upplýsingar um útflutningsvirði helstu útflutningsafurðar þjóðarinnar nema eftir mikla eftirgangsmuni. „Ef við flytjum inn banana þá er hægt að komast að virði banana sem eru fluttir hérna inn í landið en ef ég ætla að fá upplýsingar um útflutningsverðmæti á frystri loðnu þá tekur það vikur og mánuði.“ Sama hvort fólk ætli sér að segja já eða nei í ágúst „þurfum við að taka til heima hjá okkur og laga ákveðna hluti.“ Margt sé hægt að gera hratt og vel á Íslandi ef réttar ákvarðanir séu teknar. Til dæmis megi auka veiðar verulega hérlendis og koma á kerfi þannig að fiskur fari ekki óunninn erlendis.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira