Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Tómas Arnar Þorláksson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 29. júní 2026 21:05 Vilhjálmur Birgisson óttast ekki um starfsfólkið. Vísir/Sigurjón Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgist enn grannt með ferðum Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu frá. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna ekki hafa lagalega heimild til þess.
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, hefur fylgt skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir síðan í gærkvöldi innan íslenskrar lögsögu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skipið að mestu verið í biðstöðu djúpt úti á Faxaflóa skammt frá Kjalarnesi í dag en Hvalur 9 er nú kominn til Hvalfjarðar með tvær langreyðar. Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, hitti Bandero ekki á Hval 9 á leið sinni til Hvalfjarðar. Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu skammt frá Bandero en fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslunnar eru um borð í Þór ásamt áhöfn. Samtök Paul Watson hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við Aðgerð 86 sem vísar í það þegar tveimur hvalveiðibátum Hvals var sökkt í nóvember 1986. Leiðangursstjóri um borð í Bandero sem kom að skemmdarverkunum 1986 ræddi við Reykjavík síðdegis í dag. Formaður Verkalýðsfélags Akraness kveðst undrandi á því að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu tafarlaust frá landi. „Ég hefði svo sannarlega viljað að þegar þeir kæmu hér inn í lögsöguna yrði tekið á móti þeim með sambærilegum hætti og var tekið á móti Banditos á Keflavíkurflugvelli. Þá var þeim bara vísað til baka. Það liggur fyrir í hvaða tilgangi þessir menn eru komnir hingað. Þeir eru komnir hér til að valda skaða og usla,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. „Ég ætla bara að spyrja þjóðina að því: Hvað næst? Verður það þorskveiðar? Verða gerðar athugasemdir við það að við séum að veiða þorsk í net, troll á króka og svo framvegis? Að það sé ekki nægilega mannúðlegt?“ Hann segist ekki skilja af hverju þeim sé ekki vísað úr landi, sér í lagi þar sem Rod Cordona er um borð en hann er annar þeirra sem sökktu hvalveiðiskipunum Hval 6 og 7 árið 1986. Vilhjálmur óttast ekki að starfsmenn skipanna, sem eru margir hverjir í Verkalýðsfélagi Akraness, verði fyrir einhverjum skaða. „Ég ætla að leyfa mér að vona að við séum með öfluga Landhelgisgæslu til að koma í veg fyrir að þarna verði slys á fólki og ég vona að þarna sé ekki komið fólk sem hyggst valda slíku tjóni.“ Utan landhelgi og því ekki lagalegur grundvöllur Ásgeir segir Landhelgisgæsluna ekki hafa heimild til þess að grípa til slíkra aðgerða þar sem Bandero er fyrir utan tólf mílna landhelgi Íslands. Þrátt fyrir að skipið sé innan efnahagslögsögu Íslands hafi gæslan ekki heimild til þess að vísa skipum frá þar sem um er að ræða alþjóðlegt hafsvæði. „Um leið og skip fara að ógna öðru skipi og gera tilraun til að valda tjóni þá mætti Landhelgisgæslan grípa inn í en það er mikilvægt að halda því til haga að það er munur á efnahagslögsögu og landhelgi,“ segir Ásgeir. Aðrar reglur væru í gildi væri skipið innan landhelgi Íslands en hingað til hafa skipverjar Bandero haldið sig utan hennar. „Við getum ekki farið í aðgerðir sem við höfum ekki lagaheimild fyrir,“ segir Ásgeir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Sjá meira