Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. júní 2026 20:31 Kristján Loftsson er vísir/vilhelm/getty/Arnaldur Halldórsson Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust.
Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir í samtali við fréttastofu að svo virðist sem mengunin verði til við mjölvinnslu þar sem hluti soðvatns fer í gegnum fitugildru og þaðan út í sjó. Mjölvinnslan fari þannig fram að bein og annað úr hvölum er sett í 54 rúmmetra sjóðara þar sem allt er soðið niður en vatninu sem verður eftir þarf að farga. Óásættanleg meðhöndlun á vatninu Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitinu er núverandi meðhöndlun á soðvatninu óásættanleg. Vatnið er við 80 stiga hita sem er of hár hiti svo fitugildran virki sem skyldi og fitan streymir því út í sjó. Í starfsleyfi Hvals er sett skilyrði um að soðvatni sé fargað með réttum hætti. Heilbrigðiseftirlitið ítrekaði í bréfi til Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals, þann 11. maí að bæta þyrfti úr þessu. Ekkert svar hefur borist eftirlitinu. Sama aðferð var notuð þegar hvalveiði fór fram árið 2024 og hefur Hvalur því haft tvö ár til að bæta úr þessum annmörkum. Svo virðist sem fyrirtækið hafi ekki brugðist við miðað við eftirlitsferð heilbrigðiseftirlitsins í gær. Þar fékk eftirlitið eftirfarandi svar frá starfsmanni Hvals: „Ég fór í verksmiðjuna og fékk útskýringar á þessu. Þetta er soð og soðið verður til þegar við tökum lýsið úr, hluti er notaður aftur en restin fer í gegnum fitugildru og svo úti í sjó. Það er ekkert í þessu engin fita, ekkert lýsi, liturinn á soðinu er svona ljósleitur. Soðið er um 80 gráðu heitt þegar það fer út svo að það stígur hratt upp. Við erum búnir að koma okkur saman um það að þeir haldi dagbók um öll frávik svo að við getum útskýrt okkar þátt í hlutunum ef það þarf.“ Ljóst að ekki hafi verið unnið að lausn Þorsteinn segir þessa aðferð með öllu óásættanlega í skriflegu svari til fréttastofu: „Í heildina eru 54 rúmmetrar af soðvatni og þótt aðeins hluti af því fari í gegnum 5 rúmmetra fitugildru við þetta hitastig er ljóst að þessi meðhöndlun á soðvatninu er óásættanleg. Sjá póstinn minn til Kristjáns 11. maí þarf sem jafnframt er vísað í starfsleyfisskilyrði. Ljóst er að þetta bendir til að ekki hafi verið unnið að lausn á meðhöndlun soðvatnsins og því ætti að farga því með öðrum hætti sem starfsleyfisútgefandi samþykkir.“ Í umræddu bréfi til Kristjáns Loftssonar er vísað í grein 1.3.3. í starfsleyfi Hvals sem að Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út. Þar er ítrekað að soðvatninu skuli fargað með aðferðum sem hlotið hafa samþykki starfsleyfisveitanda. Í bréfinu spyr Þorsteinn hvort það liggi fyrir hvernig soðvatninu verði ráðstafað á núverandi veiðitímabili. „Ef soðvatnið verður leitt í gegnum fitugildru liggur fyrir að það myndi hreinsa út úr henni og virkni væri lítil sem engin,“ segir jafnframt í bréfinu. Gætu stöðvað starfsemina Í grein 1.3.3 í starfsleyfi Hvals segir: „Soðvatn frá sjóðurum, um 54 rúmmetrar, er eimað og er lýsið skilið frá því í skilvindu. Hluti soðkjarnans er blandaður í mjölpressuköku en restin fer í hreinsibúnað, sbr. grein 1.3.1. Á starfsleyfistímanum skal unnið að ráðstöfun á þessum hluta soðvatnsins þannig að hann verði nýttur eins og leyfi fæst til, en skal að öðrum kosti fargað með aðferðum sem hlotið hafa samþykki starfsleyfisveitanda.“ Málið er því komið til meðferðar hjá eftirlitinu og hefur Hval verið veittur andmælaréttur áður en ákvörðun verður tekin í málinu. Samkvæmt lögum gæti þvingunarúrræðum verið beitt sem varðar áminningu, dagsektum, stöðvun starfseminnar til bráðabirgða eða jafnvel afturköllun starfsleyfis. Ákvörðun yrði tekin af Heilbrigðisnefnd Vesturlands og myndi einungis snúa að vinnslunni en ekki veiðunum sjálfum. Hvalur hefur nú til 10. júlí til að bregðast við tilkynningu Heilbrigðiseftirlitsins en eftir það verður brugðist við með mögulegum þvingunarúrræðum. Fram að því verður rannsókn eftirlitsins haldið áfram.
Hvalveiðar Landhelgisgæslan Hvalir Dýr Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Sjá meira