Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 1. júlí 2026 09:00 Nú eykst spenna landsmanna enda styttist í sumarleyfin, en á meðan landsmenn undirbúa eigin ferðaplön hyggst ríkisstjórnin bjóða þjóðinni í aðra pakkaferð, til Brussel, hinn 29. ágúst. Í bæklingnum er ferðin kynnt sem einstakt tækifæri fyrir Íslendinga. Þar er talað um sæti við glæst hlaðborð reglugerða, lægri vexti, aukinn efnahagslegan stöðugleika og bjartari framtíð fyrir íslensk heimili. Það eina sem við þurfum að gera að skrá okkur í ferðina. Segja já í ágúst. Fara af stað og sjá hvað er í boði. Það hljómar auðvitað vel. En eins og með allar pakkaferðir skiptir ekki bara máli hvernig myndirnar líta út í bæklingnum. Það skiptir líka máli að lesa smáa letrið. Hverjir eru skilmálarnir? Hvað er innifalið? Hvað kostar ferðin? Hver ákveður leiðina? Og getum við snúið við ef okkur líst ekki á hvert ferðinni er heitið? Er afbókunargjald? Líkt og með aðrar pakkaferðir sem ferðaskrifstofur keppast við að selja ferðaþyrstum einstaklingum, er þessi pakkaferð heldur ekki óvissuferð. Við vitum hvert hún leiðir. Aðild að Evrópusambandinu er ekki óþekktur áfangastaður. Hún er ekki leyndardómur sem kemur fyrst í ljós þegar við lendum í Brussel. Við vitum alveg hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu þýðir fyrir Ísland, íslenskar auðlindir og stjórnskipan. Við þurfum ekki að kíkja í pakkann til að vita hvað felst í aðild. Regluverk, stofnanir, valdheimildir, dómsvald og forgangsreglur Evrópusambandsins liggja fyrir. Áður en við kaupum pakkaferðina verðum því að staldra við og lesa smáa letrið. En það verður líka að segjast eins og er í háu vaxtaumhverfi, verðbólgu og frosti á húsnæðismarkaði, er áskorun að tala gegn aðild að Evrópusambandinu. Það er vegna þess að Evrópusinnar keppast nú við að selja fólki þá trú að þessi pakkaferð til Brussel muni leysa húsnæðisvandann. Eins og samþykkt þjóðarinnar á aðildarviðræðum muni sjálfkrafa fjölga íbúðum og lækka byggingarkostnað. Eins og Evrópusambandið muni bíða okkar á endastöðinni með lægri húsnæðislánavexti í farteskinu. En það er enginn slíkur pakki til. Nýleg skýrsla Evrópusambandsins um húsnæðisvanda ungs fólks í Evrópusambandinu sýnir að húsnæðismarkaður Evrópusambandins er heldur ekki fullkominn. Hækkandi húsnæðis- og leiguverð hefur farið fram úr tekjuþróun og framboð ekki haldið í við eftirspurn. Atvinnuleysi ungs fólks hefur þá veruleg áhrif á tækifæri ungs fólks til að búa sjálfstætt. Um 30% fólks á aldrinum 25–34 ára býr enn í foreldrahúsum innan Evrópusambandsins. Í Króatíu er meðalaldur þeirra sem að flytja að heiman um 31 ár sem endurspeglar þann mikla húsnæðisvanda sem ungt fólk stendur frammi fyrir. Um daginn talaði ég við mann sem taldi að aðild að Evrópusambandinu myndi fela í sér upptöku á evrópuhúsnæðislánavöxtum á Íslandi. Þegar ég spurði hvað hann ætti við sagði hann að þetta væru meðaltals vextir innan Evrópusambandsins sem við myndum taka upp. Þetta er mantran sem almenningi er seld. Það er alveg skautað framhjá þeim staðreyndum að vextir lána eru ólíkir eftir efnahagsstjórn aðildarríkja Evrópusambandsins, aðildarviðræður geta tekið langan tíma og við verðum að ná tökum á verðbólgunni og vaxtastiginu til að geta tekið upp evru. En þá erum við líka búin að leysa vandann sjálf. Svo er það hitt að vextir eru lægri þar sem hagvöxtur er minni, endu eru þeir tól seðlabanka til að stíga á bremsurnar þegar eftirspurn eftir peningum eykst. Það er ekkert til sem heitir evrópuhúsnæðislánavextir. Sama á við um húsnæðismálin. Það þarf að byggja meira, einfalda regluverk og auka framboð lóða. Það verður ekki gert með því einu að skrá sig í pakkaferð til Brussel, rétt eins og skýrslan um húsnæðisvanda ungs fólks í Evrópu sýnir. Það verður gert með ákvörðunum hér heima. Aðild að Evrópusambandinu er ekki húsnæðisstefna ekki frekar en vaxtalækkunarstefna. Aðild eru ekki töfralausn á íslenskum efnahagsvanda. Hún er stórpólitísk ákvörðun um stjórnskipan, auðlindir og framtíð Íslands og ef þjóðin á að kjósa um aðildarviðræður, þá eigum við að ræða það sem málið snýst í raun um. Við verðum að lesa ferðaskilmálana. Við vitum hvað stendur í þeim. Við vitum að aðild felur í sér framsal valds. Við vitum að Ísland fengi lítið atkvæðavægi í valdakerfi Evrópusambandsins. Við vitum að sérstaða Íslands er mikil. Við vitum að íslenskar auðlindir eru undirstaða lífskjara okkar. Og við vitum að vandamál húsnæðismarkaðarins verða ekki leyst með aðildarumsókn. Höfundur er í stjórn Ung gegn ESB-aðild Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun