Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 12:30 Aron Birkir Stefánsson skoraði markið með skoti langt fyrir aftan miðju. Syn Sport Aron Birkir Stefánsson varð í gær aðeins fjórði markvörðurinn til að skora í efstu deild karla þegar hann skoraði fyrir Þórsara í 3-3 jafntefli á móti KR í Bestu deildinni í fótbolta.
Það þarf að fara aftur til 14. júní 1978 til að finna mark hjá markverði í efstu deild karla sem ekki var skorað úr vítaspyrnu. Hér má sjá myndaröð í umfjöllun um leikinn í Morgunblaðinu.Timarit.is/MBL Markið var skorað í leik sem fór fram á gömlu Hallarflötinni eða á sama stað og gervigrasvöllur Þróttar er staðsettur í dag. Jón Þorbjörnsson sem skoraði eina mark fyrri hálfleiks í 4-2 sigri Skagamanna á Víkingum í júní fyrir 48 árum með glæsilegu útsparki og boltinn þeyttist fram völlinn og í gegnum klofið á markverði Víkings, Diðriki Ólafssyni. „Ég trúði því ekki fyrst að ég hefði skorað,” sagði Jón Þorbjörnsson við Þjóðviljann eftir leikinn. Hann fann þó til með kollega sínum hinum megin á vellinum sem fékk boltann í gegnum klofið á sér þegar hann skaust á blautum vellinum. „Auðvitað var gaman að skora en það var neyðarlegt fyrir jafn góðan markvörð og Diðrik er að fá á sig slíkt mark,” sagði Jón. Jón er líka eini markvörðurinn fyrir utan Aron Birki í gær til að skora mark sem kom ekki úr vítaspyrnu. Hér má sjá myndaröð af markinu í Tímanum.Timarit.is/Tíminn Síðastur markvarða til að skora í efstu deild var Albert Sævarsson sem skoraði úr vítaspyrnu í 2-0 sigri ÍBV á Selfossi 16. september 2010. Albert fékk tækifæri til að skora úr öðru víti þetta sumar en lét þá verja frá sér. Þorsteinn Ólafsson var aftur á móti fyrsti markvörðurinn til að skora mark í efstu deild þegar hann skoraði úr vítaspyrnu í 2-2 jafntefli Keflvíkinga og Skagamanna 29. ágúst 1976. Þetta var kveðjuleikur Þorsteins því hann var að fara til Svíþjóðar í nám.
Besta deild karla Þór Akureyri KR Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira