Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar 4. júlí 2026 15:03 Það er fagnaðarefni að nýr meirihluti borgarstjórnar ætlar að færa út vaxtarmörk byggðar og hefja uppbyggingu til norðurs. Horfið verður frá ofurþéttingu byggðar sem hefur stuðlað að óeðlilegri hækkun húsnæðiskostnaðar og þar með haft neikvæð áhrif á verðbólgu og lífskjör í landinu. Bæjaryfirvöld í grannsveitarfélögum sunnan borgarinnar vilja einnig færa út vaxtarmörk byggðar, þannig að ekkert ætti að standa í veginum fyrir því að svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verði endurskoðað á þessu kjörtímabili. Samgönguskipulag Í gildandi svæðisskipulagi er lögð ofuráhersla á þéttingu byggðar til þess að skapa grundvöll fyrir fjölgun farþega með almenningssamgöngum. Ákvörðun um að hverfa frá ofurþéttingu byggðar kallar því ein og sér á endurskoðun samgönguskipulags. Gjörbreyttar áherslur borgaryfirvalda í bílastæðamálum, bæði í miðborginni og nýjum hverfum, kalla einnig á breytt samgönguskipulag. Samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á að leggja svokölluð tafa- eða flýtigjöld á alla bílaumferð, bæði til að fjármagna að hluta til uppbyggingu samgönguinnviða á svæðinu og eins til að hvetja fólk til þess að nota meira almenningssamgöngur. Nýi borgarstjórnarmeirihlutinn vill að hætt verði við þessa gjaldtöku. Ef nágrannasveitarfélögin samþykkja það þá er komin enn ein ástæðan til að breyta samgönguskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Að öllu samanlögðu er ljóst að full ástæða er til að endurskoða áætlanir um útfærslu Borgarlínu samhliða endurskoðun samgöngusáttmálans. Núverandi áætlanir um niðurfellingu akreina á umferðargötum til þess að skapa sérrými fyrir Borgarlínuna leiða til það mikilla umferðartafa að hún verður þjóðhagslega óhagkvæm, sbr. niðurstöður rannsóknar SFA (Samgöngur fyrir alla) og RSE (Rannsóknarsetur um samfélags- og efnahagsmál) um valkosti við Borgarlínu, þar sem núvirði Borgarlínu (allt kerfið, 60 km) er metið neikvætt upp á 210 milljarða ISK, sbr. þessa skýrslu: Ný skýrsla: Valkostir við borgarlínu - Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál Samkvæmt umferðarspám Mannvits & Cowi (2024) er reiknað með að umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu, mældar í klst., muni verða þrefalt meiri 2040 en þær voru 2019, jafnvel þó öllum framkvæmdum samgöngusáttmálans verði þá lokið. Umferðartafir hafa aukist hratt á undanförnum árum og eru nú þegar orðnar álíka miklar eða meiri en í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Það stefnir í óefni ef ekki er breytt um stefnu. Suðurlandsbraut Því ber að fagna að borgarstjórn hefur fellt úr gildi tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar milli Kringlumýrarbrautar og Grensásvegar. Að öllum líkindum verður hvorki fækkað bílastæðum við götuna né akreinum fyrir almenna umferð. Í gær var birt þessi frétt um Suðurlandsbraut hér á Vísi Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina - Vísir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, segir í hljóðvarpsviðtali við Vísi: „Flöskuhálsinn á annatímum er ekki endilega fjöldi akreinanna, heldur þá eru það þessar tengingar og ljósastýrðu punktarnir sem eru flöskuhálsinn“. Hann heldur því til streitu að besta lausnin sé miðjusett Borgarlína og fækkun akreina fyrir almenna umferð niður í eina akrein í hvora akstursstefnu. Hann bendir þó á að mesti flöskuhálsinn sé fjöldi akreina í ljósastýrðum gatnamótum og bregðast megi við því einfaldlega með því að hafa fleiri akreinar í gatnamótum en á milli gatnamóta. Það er velþekkt aðferð til að auka flutningsgetu 2 akreina gatna með ódýrum og hagkvæmum hætti að fjölga akreinum í beinu akstursstefnuna í 2 + 2 í gegnum ljósastýrð gatnamót. Undir flestum kringumstæðum er flutningsgetan samt töluvert minni en þar sem eru 2 + 2 akreinar bæði í gatnamótum og á milli gatnamóta. Ég tel að hagkvæmasta lausnin sé að hafa umferðarskipulag Suðurlandsbrautar óbreytt frá því sem er í dag, þ.e. 2 + 2 akreinar fyrir almenna umferð. Til greina kemur að hafa stuttar forgangsakreinar fyrir strætó við ljósastýrð gatnamót. Það þarf að skoða í samhengi við mögulegan forgang með snjallstýringu umferðarljósa. Höfundur er samgönguverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngumál Borgarstjórn Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun