Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2026 08:00 Margir Svíar eru alveg búnir að sjá nóg af Norðmönnum og víkingaróðri þeirra út um allt. Getty/Steph Chambers Norðmenn eru að blómstra á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta og þótt stærsta prófið sé fram undan hafa þeir unnið alla þrjá leikina með sitt besta lið. Hinum megin við landamærin eru Svíar ekkert alltof kátir með uppkomu nágranna og erkifjenda sinna.
Norðmenn mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum í kvöld og þótt flestir búist við sigri Brasilíumanna þá er norska landsliðið allt annað en auðveldur andstæðingur fyrir brasilískt landslið sem hefur ekki verið alltof sannfærandi á heimsmeistaramótinu til þessa. Það er líka þannig að margir Svíar eru orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu í þessum mikilvæga leik. Norska ríkisútvarpið fjallar um þessa stöðu sem er komin upp hjá nágrönnum þeirra. Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hreyfði líka aðeins við Norðmönnum þegar hún var nýlega spurð hverjum hún myndi halda með á HM ef Svíþjóð dytti út. „Allavega ekki Noregi“ „Allavega ekki Noregi,“ svaraði hún og Norðmenn eru ekki hrifnir. Ummælin hneyksluðu norska rithöfundinn Aslak Nore og fengu hann til að skrifa langa athugasemd „Kannski ætti ég að vera nógu stórhuga til að láta þetta eiga sig,“ skrifar Nore, en getur ekki stillt sig. „Við stóðum með ykkur á HM 1994. Og þetta eru þakkirnar?“ spyr hann retórískt. Krönika inför Brasilien-Norge: Jag har svårt att fatta hatet mot Norgehttps://t.co/pqjemfDm6D— Olof Lundh (@oloflundh) July 4, 2026 „En er það svo að utanríkisráðherrann hafi breiðan stuðning meðal sænsku þjóðarinnar?“ spyr norska ríkisútvarpið og kannaði aðeins málið. Philip Gadd, þekktur fréttamaður Expressen, sem er staddur í Bandaríkjunum til að fjalla um norska landsliðið á HM, segir að hans tilfinning sé sú að Svíar vonist eftir því að Norðmenn falli á magann á HM. „Tilfinningar Svía til Noregs á þessu móti hafa ekki breyst þótt Svíþjóð hafi dottið út. Það er enn þannig að við viljum helst ekki að þið vinnið Brasilíu,“ sagði Gadd við norska ríkisútvarpið. Flestir Svíar halda með Brasilíu „Svo þú heldur að Svíar haldi með Brasilíu?“ spurði blaðamaður NRK. „Já, ég held að flestir Svíar muni halda með Brasilíu,“ svaraði Gadd. Gadd telur að stór hluti ástæðunnar snúist um afbrýðisemi og svokallaðan montrétt. Hann telur að það sé farið að verða ógnvekjandi þegar virkilega gott HM-sumar fyrir Noreg er í uppsiglingu – eitthvað sem Svíar hafa lengi verið einir um að upplifa. „Við áttum slíkt sumar 1994 þegar við tókum bronsið. Við viljum hafa einkarétt á þeirri minningu og þeim árangri í Skandinavíu. Enginn annar má komast nálægt því. Svo núna þegar þið eruð komnir í 16-liða úrslit, og það lítur nokkuð vel út fyrir leikinn gegn Brasilíu, eru ansi margir Svíar farnir að óttast að það gangi aðeins of vel þarna í Noregi,“ sagði Gadd. Ekki eins pirraður á íslenska víkingaklappinu Sænski fótboltablaðamaðurinn og rithöfundurinn Olof Lundh vinnur fyrir sænska TV4 og er líka staddur í Bandaríkjunum. Hann er á svipuðum slóðum í mati sínu á tilfinningum sænsku þjóðarinnar. „Það er augljóslega samkeppni og sumum finnst þreytandi þessi norska þjóðernishyggja og að þið séuð betri en Svíþjóð á HM. Bætið við víkingadæminu og að allir eigi að róa, og það gerir að margir verða þreyttir á því. Það var mun minna viðkvæmt þegar Ísland keyrði áfram víkingaklappið,“ sagði Lundh við NRK. Á sama tíma er hans tilfinning sú að það séu líka margir Svíar sem séu ekkert að láta góðan árangur Norðmanna pirra sig. „Ég er ekki viss um að meirihluti Svía haldi með Brasilíu frekar en Noregi. Í fyrsta lagi vegna þess að ekki allir láta sig það varða, heldur finnst þeim það sem gerist í kringum skíðagöngu til dæmis vera kjánalegt, og í öðru lagi vegna þess að sumir ná ekki að magna upp neina ástríðu fyrir því hvort þeir eigi að halda með Noregi eða Brasilíu,“ telur hann.
HM 2026 í fótbolta Noregur Svíþjóð Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Sjá meira