Daily Mail hafði betur gegn Harry Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. júlí 2026 14:05 Harry Bretaprins tapaði fyrir Daily Mail. EPA Harry Bretaprins og Elton John töpuðu í hópmálsókn sem þeir höfðuðu gegn eiganda fjölmiðilsins Daily Mail. Þeir, ásamt fjórum öðrum, sökuðu fjölmiðilinn um að hlera einkasímtöl og afla upplýsinga um líf þeirra með blekkingum.
Málið var höfðað árið 2023 og fóru réttarhöldin fram í janúar 2026. Harry Bretaprins, Elton John tónlistarmaður og eiginmaður hans David Furnish auk Sadie Frost leikkonu, Doreen Lawrence baráttukona og Simon Hughes, fyrrverandi þingmaður, höfðuðu málið gegn fjölmiðlinum Associated Newspapers. Miðillinn á meðal annars Daily Mail, Metro og The Mail on Sunday. Harry sakaði miðilinn um að hafa birt fjórtán greinar árin 2001 til 2013 þar sem byggt var á ólöglegri upplýsingaöflun. Ein greinanna fjallaði um samband Harrys við þáverandi kærustu sína Lauru Gerard-Leigh og áform þeirra sem par. Fyrir rétti sagði Harry það ótrúlegt að upplýsingar í fréttinni hefðu ratað í blöðin þar sem mikil leynd var yfir sambandinu. Sömuleiðis var skrifuð grein um náin smáatriði um samband hans við Chelsy Davy árið 2004. Vildu leiða hann út í drykkju Við réttarhöldin í janúar sakaði Harry útgefandann um að vilja ýta sér út í neyslu fíkniefna og drykkju með því að fylgjast grannt með lífi hans. Útgefandinn hafi verið með eins konar þrjáhyggju fyrir því að fylgjast með öllum þáttum lífs prinsins og einangrað hann. „Þeir halda áfram að sækja að mér. Þeir hafa gert líf eiginkonu minnar að algjörri eymd, herra dómari,“ segir The Guardian að Harry hafi sagt við réttarhöldin. Útgefandinn neitaði ásökunum og sagði þær fengnar með löglegum hætti frá tengiliðum blaðamannanna, þar á meðal einstaklingum úr vinahópi Harry. Harry fullyrti að hann ætti ekki vinahóp sem leki upplýsingum líkt og fjölmiðlar Associated Newspaper fjölluðu um. Hann sagði einnig að Katie Nicholl, þáverandi blaðamaður Mail on Sunday, hefði sótt sömu samkvæmi og næturklúbba og Harry. Útgefandinn tók einnig fram að Harry hefði átt í góðu sambandi við Rebeccu English, konunglegan ritstjóra Daily Mail, fullyrðing sem Harry neitaði. Harry giftist bandarísku leikkonunni Meghan.EPA „Til að taka af allan vafa, þá er ég ekki vinur neinna þessara blaðamanna og hef aldrei verið,“ sagði Harry. Sýknað af kröfunum Í dómnum, sem er 463 blaðsíður, segir dómarinn að stefnendum hefði ekki tekist að sanna ásakanir um ólöglega upplýsingaöflun samkvæmt umfjöllun The Guardian. „Dómstóllinn hafnar tilrauninni til að sanna kröfurnar með víðtækri ályktun þar sem enn var til staðar lögmæt og raunhæf uppspretta upplýsinga, eða þar sem sönnunargögn sem tengdust tiltekinni grein sönnuðu ekki að viðkomandi upplýsingar hlytu að hafa verið fengnar með ólöglegum hætti,“ segir í samantekt dómarans. „Dómstóllinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að aðilar væru bundnir af þeim málum sem þeir höfðuðu. Það var ekki leyfilegt við réttarhöld að skipta út framlagðri ásökun fyrir aðra, í mörgum tilfellum alvarlegri, ásökun um ólöglega upplýsingaöflun. Kröfunum er því vísað frá.“ Herferð til að þagga niður í fjölmiðlum Í kjölfar dómsins birti Assocaited Newspaper fréttatilkynningu þar sem þeir segjast fagna dóminum sem sé sigur fyrir Daily Mail, blaðamenn þess og fyrir frjálsa fjölmiðla almennt. „Nicklin dómari sýknaði í dag Daily Mail og The Mail on Sunday og vísaði frá hverri einustu af þeim 97 ásökunum sem stefnendur báru fram. Í hverju einasta máli tók dómarinn framburð blaðamanna okkar um hvernig þeir öfluðu heimilda fyrir fréttir sínar gildan,“ segir í tilkynningunni. „Eins og við sögðum á sínum tíma voru þessar ásakanir „svívirðilegar“ og „fáránlegar“ og voru veiðiferð af hálfu stefnenda og lögfræðiteyma þeirra í pólitískt mótiveraðri herferð til að þagga niður í frjálsum fjölmiðlum.“
Kóngafólk Erlend sakamál Bretland Harry og Meghan Karl III Bretakonungur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira