Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar 8. júlí 2026 07:33 Sjór og vatn eru, og verða áfram, meðal mikilvægustu auðlinda Íslands. Fjölmörg tækifæri felast í því að auka enn frekar verðmæti sem hægt er að skapa á grunni þeirra með veiðum, ræktun, vinnslu og nýsköpun. Samvinna sjávarútvegs og fiskeldis eykur samkeppnishæfni, dreifir áhættu og styrkir íslenskt hagkerfi. Við Íslendingar höfum áratugum saman skarað fram úr í hefðbundnum sjávarútvegi og byggt upp þekkingu, tækni og vinnslu sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar. Á síðustu árum hefur fiskeldi, bæði í sjó og á landi, bæst við sem ný og spennandi atvinnugrein. Hún byggist að miklu leyti á sömu undirstöðum, aðgengi að íslenskum auðlindum, tæknilegri færni og sterkum sjávarbyggðum. Fiskeldi á Íslandi er enn að stíga sín fyrstu skref í samanburði við margar aðrar þjóðir, en nýtur góðs af innviðum, þekkingu og flutningskerfum sem byggst hafa upp í kringum hefðbundinn sjávarútveg. Í auknum mæli má sjá þessar greinar vinna saman og styðja hvor við aðra. Fiskeldisfyrirtæki hafa til dæmis nýtt sér frystigetu og áframvinnslu hjá rótgrónum útgerðarfyrirtækjum á Vestfjörðum. Með því geta þau jafnað afhendingu, brugðist betur við sveiflum á mörkuðum og aukið verðmæti afurða. Samstarfið er mögulegt vegna þess að útgerðarfyrirtæki höfðu bolmagn, áræðni og framtíðarsýn til að byggja upp öfluga vinnslu. Sú fjárfesting þjónar nú fleiri greinum og styrkir heildarumgjörð atvinnulífsins. Landeldisfyrirtæki á Suðurlandi hafa einnig gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu sjókvíaeldis með framleiðslu seiða fyrir eldisfyrirtæki á Vestfjörðum og Austfjörðum. Með því styrkja þau eigin rekstrargrundvöll og sjókvíaeldisfyrirtæki fá aðgang að stærri og sterkari seiðum. Þetta er gott dæmi um gagnkvæman ávinning þar sem fjárfesting, þekking og innviðir nýtast á fleiri en einum stað í atvinnulífinu. Þótt fiskeldi og sjávarútvegur eigi sér ólíka sögu geta greinarnar nýtt styrkleika hvor annarrar. Hefðbundinn sjávarútvegur býr yfir mikilli þekkingu á mörkuðum, vinnslu og sölu sjávarafurða, nýtur trausts og hefur verið öflugur bandamaður nýsköpunar á Íslandi. Eldisgreinarnar koma með nýja fjárfestingu, nýja markaði og aukna fjölbreytni í útflutningi íslensks sjávarfangs. Saman geta greinarnar stutt enn frekar við íslenskt hagkerfi og styrkt sjávarbyggðir um land allt og efnahagslega hagsæld þjóðarinnar. Höfundur er sérfræðingur í fiskeldi hjá SFS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Sjá meira
Sjór og vatn eru, og verða áfram, meðal mikilvægustu auðlinda Íslands. Fjölmörg tækifæri felast í því að auka enn frekar verðmæti sem hægt er að skapa á grunni þeirra með veiðum, ræktun, vinnslu og nýsköpun. Samvinna sjávarútvegs og fiskeldis eykur samkeppnishæfni, dreifir áhættu og styrkir íslenskt hagkerfi. Við Íslendingar höfum áratugum saman skarað fram úr í hefðbundnum sjávarútvegi og byggt upp þekkingu, tækni og vinnslu sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar. Á síðustu árum hefur fiskeldi, bæði í sjó og á landi, bæst við sem ný og spennandi atvinnugrein. Hún byggist að miklu leyti á sömu undirstöðum, aðgengi að íslenskum auðlindum, tæknilegri færni og sterkum sjávarbyggðum. Fiskeldi á Íslandi er enn að stíga sín fyrstu skref í samanburði við margar aðrar þjóðir, en nýtur góðs af innviðum, þekkingu og flutningskerfum sem byggst hafa upp í kringum hefðbundinn sjávarútveg. Í auknum mæli má sjá þessar greinar vinna saman og styðja hvor við aðra. Fiskeldisfyrirtæki hafa til dæmis nýtt sér frystigetu og áframvinnslu hjá rótgrónum útgerðarfyrirtækjum á Vestfjörðum. Með því geta þau jafnað afhendingu, brugðist betur við sveiflum á mörkuðum og aukið verðmæti afurða. Samstarfið er mögulegt vegna þess að útgerðarfyrirtæki höfðu bolmagn, áræðni og framtíðarsýn til að byggja upp öfluga vinnslu. Sú fjárfesting þjónar nú fleiri greinum og styrkir heildarumgjörð atvinnulífsins. Landeldisfyrirtæki á Suðurlandi hafa einnig gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu sjókvíaeldis með framleiðslu seiða fyrir eldisfyrirtæki á Vestfjörðum og Austfjörðum. Með því styrkja þau eigin rekstrargrundvöll og sjókvíaeldisfyrirtæki fá aðgang að stærri og sterkari seiðum. Þetta er gott dæmi um gagnkvæman ávinning þar sem fjárfesting, þekking og innviðir nýtast á fleiri en einum stað í atvinnulífinu. Þótt fiskeldi og sjávarútvegur eigi sér ólíka sögu geta greinarnar nýtt styrkleika hvor annarrar. Hefðbundinn sjávarútvegur býr yfir mikilli þekkingu á mörkuðum, vinnslu og sölu sjávarafurða, nýtur trausts og hefur verið öflugur bandamaður nýsköpunar á Íslandi. Eldisgreinarnar koma með nýja fjárfestingu, nýja markaði og aukna fjölbreytni í útflutningi íslensks sjávarfangs. Saman geta greinarnar stutt enn frekar við íslenskt hagkerfi og styrkt sjávarbyggðir um land allt og efnahagslega hagsæld þjóðarinnar. Höfundur er sérfræðingur í fiskeldi hjá SFS.
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun