Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júlí 2026 09:53 Finnur Arnar Arnarsson festir merki ListaVestursins á vegg Tanksins á Flateyri. Menningarhátíðin ListaVestrið verður haldin í fimmta skiptið í ár og fer fram dagana 11. til 19. júlí á Flateyri. Fimmtán listamenn taka þátt í hátíðinni í ár og má þar nefna hjónin Huldu Hákon og Jón Óskar, Einar Örn Benediktsson og svo sýna börn Jóns Sigurpálssonar heitins verk hans.
ListaVestrið hefur fest sig í sessi sem metnaðarfullur vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum á síðustu árum. ListaVestrið sameinar starfsemi þriggja sýningarrýma á Flateyri, Gallerísins undir brúnni á Sólbakka, Gömlu Slökkvistöðvarinnar og Tanksins, sem öll hafa undanfarin ár staðið fyrir fjölbreyttum listviðburðum, sýningum og opnunum. Opnun hátíðarinnar fer fram 11. júlí klukkan 15 í Tankinum á Sólbakka og á aðaldagskrá ListaVestursins í sumar verða fjórar myndlistarsýningar. Fjöldi fólks mætti á hátíðina í fyrra. Í Gömlu Slökkvistöðinni munu Jón Óskar og Hulda Hákon sýna verk sín, í Galleríinu undir brúnni mun Krassasig, Kristinn Arnar Sigurðsson, gera staðbundna innsetningu, á neðri hæð Tanksins sýna Ísfirðingarnir og systkinin Gunnar og Rannveig Jónsbörn verk sín og föður þeirra, Jóns heitins Sigurpálssonar og á efri hæð Tanksins sýnir Einar Örn Benediktsson, tón- og myndlistarmaður, auk þess sem Jóel Pálsson saxafónleikari flytur hljóðverk við opnun hátíðarinnar. Sem fyrr verður fjöldi annarra innsetninga og sýninga settar upp víða á Flateyri, sem sýningar utan dagskráar. Þá verður gestum hátíðarinnar boðið að spreyta sig á að mála fjallið Þorfinn sem stendur handan fjarðar og boðið upp á listasmiðju fyrir börn dagana 14.–17. júlí í Samkomuhúsinu á Flateyri, undir leiðsögn Einars Viðars Thoroddsen og Fannars Skarphéðinssonar.
Ísafjarðarbær Myndlist Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira