Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar 8. júlí 2026 13:02 Viljum við eins og staðan er nú loka okkur inní ríkjasambandi með öllum þessum ólíku þjóðum í ESB með ólíkum menningararfi, ólíkum trúarbrögðum, ólíkum siðum og venjum, ólíkri framtíðarsýn, og í sumum tilvikum okkur mjög framandi og oft fráhrindandi? Teljum við það best fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar? Eigum við samleið með þeim? Getum við valið að eiga samleið með bara sumum en ekki öðrum? ESB lönd í dag Austurríki, Belgía, Búlgaría, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Luxembourg, Malta, Holland, Pólland, Portúgal, Rúmanía, Slovakía, Slovenía, Spánn og Svíþjóð. Umsækjendur um aðild að ESB Albanía, Bosnía og Herzegovína, Georgía, Moldóva, Svartfjallaland, Norður Makedónía, Serbía, Tyrkland og Úkraína. Við eigum valkost sem er í gildi í dag og gildir áfram. Sá valkostur er Evrópska efnahagssvæðið (EES). Það er sameiginlegt markaðssvæði sem nær yfir öll 27 ríki Evrópusambandsins ásamt Íslandi, Noregi og Liechtenstein. EES samningurinn hefur reynst okkur og Norðmönnum einstaklega vel í þau 32 ár sem hann hefur verið í gildi og velferð aldrei verið meiri bæði í Noregi sem og hér á landi. Hætt er við að það myndi draga illilega úr velferð okkar ef við göngum í ESB. Höfum við þá einhvern ávinning af því að ganga í ESB? Það yrðu dýr aðildargjöld fyrir okkur í botnlausa sjóði ESB og óvíst hvað við fáum mikið tilbaka. Er ekki farsælast fyrir okkur að halda okkur við EES saminginn áfram í góðum félagsskpa frænda okkar Norðmanna? Innganga í ESB er ekki til umræðu í Noregi og þá fyrst ef Norðmenn hyggja á inngöngu í ESB ættum að við að íhuga það líka. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Viljum við eins og staðan er nú loka okkur inní ríkjasambandi með öllum þessum ólíku þjóðum í ESB með ólíkum menningararfi, ólíkum trúarbrögðum, ólíkum siðum og venjum, ólíkri framtíðarsýn, og í sumum tilvikum okkur mjög framandi og oft fráhrindandi? Teljum við það best fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar? Eigum við samleið með þeim? Getum við valið að eiga samleið með bara sumum en ekki öðrum? ESB lönd í dag Austurríki, Belgía, Búlgaría, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Luxembourg, Malta, Holland, Pólland, Portúgal, Rúmanía, Slovakía, Slovenía, Spánn og Svíþjóð. Umsækjendur um aðild að ESB Albanía, Bosnía og Herzegovína, Georgía, Moldóva, Svartfjallaland, Norður Makedónía, Serbía, Tyrkland og Úkraína. Við eigum valkost sem er í gildi í dag og gildir áfram. Sá valkostur er Evrópska efnahagssvæðið (EES). Það er sameiginlegt markaðssvæði sem nær yfir öll 27 ríki Evrópusambandsins ásamt Íslandi, Noregi og Liechtenstein. EES samningurinn hefur reynst okkur og Norðmönnum einstaklega vel í þau 32 ár sem hann hefur verið í gildi og velferð aldrei verið meiri bæði í Noregi sem og hér á landi. Hætt er við að það myndi draga illilega úr velferð okkar ef við göngum í ESB. Höfum við þá einhvern ávinning af því að ganga í ESB? Það yrðu dýr aðildargjöld fyrir okkur í botnlausa sjóði ESB og óvíst hvað við fáum mikið tilbaka. Er ekki farsælast fyrir okkur að halda okkur við EES saminginn áfram í góðum félagsskpa frænda okkar Norðmanna? Innganga í ESB er ekki til umræðu í Noregi og þá fyrst ef Norðmenn hyggja á inngöngu í ESB ættum að við að íhuga það líka. Höfundur er verkfræðingur.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar