Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar 9. júlí 2026 15:31 Þau sem segja sögur sem skapa ótta hjá fólki búa yfir öflugu valdatæki. Eins og við vitum getur óttinn við óvininn fengið fólk til að taka þátt í og styðja skipulagt ofbeldi gegn ókunnugu fólki, sem ekkert hefur til saka unnið. Hræðsluáróður er því öflugt tæki þeirra sem hafa hag af stríðsrekstri og þeirra sem vilja fá fólk til liðs við sig. Óttinn kemur í veg fyrir að við beitum rökhugsun þegar við tökum ákvarðanir. Þau sem markvisst beita hræðsluáróðri til að vekja upp ótta, vita hvað þau eru að gera. Þegar óttinn hefur náð tökum, er næsta skref „hins sterka leiðtoga“ að segja: „Ég veit best, stattu með mér og þá hefur þú ekkert að óttast.“ Því er mikilvægt að vera vel á verði og verjast gegn hræðsluáróðri með því að skoða: Hver segir söguna? Hvernig verndar sagan hagsmuni þess sem segir söguna? Hvaðan kemur sagan? Hvaða sögur fá ekki að heyrast þegar ein saga verður ríkjandi? Hvaða áhrif hefur sagan? Hverjum þjónar sagan og hvernig? Hræðslan við óvininn byggir líka á skiptingunni í okkur og hin. Þá er óvinurinn sá sem er ekki eins og við, en í rauninni er óvinurinn ekki svo ólíkur okkur og við erum óvinir annarra. Löngunin og þörfin fyrir að tilheyra er sterk hjá okkur manneskjunum og samstaðan byggir oft á því að við teljum okkur öðruvísi en þau sem við óttumst. Þá er dregið fram það sem aðskilur okkur frá óvininum, en ekki það ekki það sem eigum sameiginlegt og sameinar. Það er áhugavert að skoða hvernig við skilgreinum okkur sem hluta af hópi, flokki eða samfélagi. Við erum einnig skilgreind af öðrum og tilheyrum án þess að hafa valið það. Þegar maður velur að tilheyra skiptir máli að maður finni fyrir samstöðu og treysti „fólkinu sínu“ og það þarf ekki að þýða fordæmingu annarra. Í mínu lífi hef ég tilheyrt mörgum mismunandi hópum og samfélögum. Mitt fólk núna er stórfjölskyldan, sem er fjölþjóðleg og búsett á fleiri stöðum en á Ísland og vinirnir, og það sama gildi um þá. Ég á margt sameiginlegt með, og get samsamað mig, fólki sem býr í og kemur frá öðrum löndum og heimshlutum. Ég á meira sameiginlegt með launafólki í millistétt í löndum Evrópu, en með yfirstétt og forríku fólki á Íslandi og annarstaðar. Ég lít því á mig sem heimsborgara. Ég nýt forréttinda og vegna þess að ég er fædd á Íslandi og vegna þess að ég tilheyri klúbbnum Vesturlandabúar. Það eru ekki bara forréttindi, því ég er meðvituð um áhrif af skipulögðu ofbeldi Vesturlanda. Það að Ísrael fær að komast upp með þjóðarmorð, á meðan flestir vestrænir leiðtogar líta undan eða styðja markvisst stjórnvöld í Ísrael, gerir mér erfitt að tilheyra Vestrinu. Það sem ég óttast er hernaðarhyggjan, sem er safn hugmynda sem gerir það mögulegt að manneskjur beiti börn og annað fólk skipulögðu ofbeldi. Þá er litið svo á að ofbeldi leysi vandamál. Það er eftirspurn eftir stríðum vegna þess að þau er góður „business“ meðal annars vegna þess að það eru skattgreiðendur sem fjármagna kostnaðinn og þar með gróðann af stríðsrekstri og uppbyggingu eftir stríð. Stríð henta mörgum valdhöfum og þau eru mörg sem sjá hag sínum vel borgið, beint og óbeint, vegna stríðreksturs. Ég er ekki aðdáandi leiðtoga Evrópusambandsins. Ég á erfitt með stríðsgleði og hræðsluáróður þeirra Ursulu von der Leyen og Kaju Kallas og ég vildi óska að ég hefði val um annað en það sem þær hafa uppá að bjóða. Það hef ég ekki, því orðræða íslenskra leiðtoga í stjórn og stjórnarandstöðu er sú sama og þeirra. Alið er á ótta við óvininn og þar með réttlætingu á eyða skattfé í vopn og „varnar og öryggismál.“ Við Íslendingar erum í sömu klíku og þær Ursula von der Leyen og Kaja Kallas og nei í ágúst mun því miður ekki breyta því. Höfundur er með MA í friðarfræðum og MPhil í lausn ágreiningsmála og hefur starfað á herstöðvum í Afganistan auk búsetu og starfa í stríðshrjáðum löndum í Afríku, Evrópu og Asíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar