Mælirinn segir 33 gráður Bjarki Sigurðsson skrifar 12. júlí 2026 15:44 Hér sjást gráðurnar þrjátíu og þrjár. Fréttamaður verður seint þekktur fyrir ljósmyndahæfileika eða fyrir að þurrka reglulega af mælaborðinu. Vísir/Bjarki Hitabylgjan á Austurlandi náði hámarki um hádegisbilið þegar hiti mældist 27 gráður á nokkrum stöðum. Áfram verður besta veðrið á Austurlandi næstu daga, þó ekki jafn gott og í dag. Fréttamanni brá þegar hann leit á hitamælinn í bílnum og á honum stóð að úti væru 33 gráður.
Ferðavagnar hafa verið á fleygiferð um götur Egilsstaða í dag þar sem ferðalangar eru ýmist að koma sér aftur heim eftir heita helgi fyrir austan eða að mæta á svæðið, enda von á ágætis veðri næstu daga. Það má láta sig dreyma Undirritaður er á Egilsstöðum og brá í brún þegar litið var á hitamælinn í bílnum um hádegisbilið. Á mælinum stóð að úti væru 33 gráður. „33 gráður? Það er alltaf gott að láta sig dreyma,“ sagði Marcel de Vries, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni, þegar hitatölurnar voru bornar undir hann. „Raunverulegur lofthiti er 21.“ Það var skýjað en sjóðandi heitt á Egilsstöðum í dag. Vísir/Bjarki Marcel bætti við að líklegast hefði bíllinn setið í sólinni, sem var rétt hjá honum. Áfram fínasta veður Hiti náði mest 27 gráðum á Egilsstöðum og fleiri stöðum á Austurlandi. Spárnar gera ekki ráð fyrir svo heitum degi seinna í vikunni þó svo að hiti verði um og yfir tuttugu gráðum. „Besta veðrið verður enn næstu daga á Austurlandi. Það gæti komið smá rigning á morgun, sérstaklega seinni partinn og annað kvöld. Það verður skýjað og dálítil rigning. Í fínasta lagi, en ekki eins og í dag. 27 stig á nokkrum stöðum í dag, en á morgun má búast við 22 gráðum,“ segir Marcel. Svona er veðurkortið fyrir hádegið á þriðjudaginn. Rigning á Vestur- og Suðvesturlandi en blíða fyrir austan. Á myndunum í fréttinni má sjá að það er ansi grátt yfir öllu. Einhverjir hafa slegið því upp að um svokallað hitamistur sé að ræða en Marcel er ekki sammála því. „Það er hvasst á hálendinu, gul viðvörun á miðhálendinu vegna vinds. Þannig þetta er ryk og sandfok. Það er suðvestan átt og þetta streymir til norðausturs,“ segir Marcel. Þetta er ekki neitt hitamistur heldur sandfok af hálendinu.Vísir/Bjarki
Veður Múlaþing Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Sjá meira