Fótbolti

Draumabyrjun Freys hjá norska stór­veldinu

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson byrjar vel hjá Rosenborg.
Freyr Alexandersson byrjar vel hjá Rosenborg. Getty/Alessandro Sabattini

Rosenborg vann öruggan og afar sannfærandi 3-0 sigur gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, í fyrsta leik norska stórveldisins undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Freyr var rekinn frá Brann í byrjun júní en fékk fljótt starf í sömu deild þegar hann var ráðinn til Rosenborgar.

Rosenborg hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og var í fallsæti þegar Freyr tók við en með sigrinum í dag náði Rosenborg að senda Kristiansund niður í fallsæti. 

Jonas Svensson kom Rosenborg yfir á 25. mínútu og Dávid Duris bætti við marki skömmu síðar. Amin Chiakha skoraði svo á 54. mínútu og innsiglaði draumabyrjun Freys í starfi, þó að munurinn hefði alveg getað orðið meiri.

Júlíus Mar Júlíusson stóð í vörn Kristiansund að vanda.

Rosenborg er núna með 12 stig eftir 12 leiki, í 13. sæti af 16 liðum, en aðeins stigi fyrir ofan Kristiansund og áfram í bullandi fallbaráttu. Að sama skapi eru þó til að mynda aðeins þrjú stig upp í 8. sæti. Start er neðst í deildinni með sjö stig.

Fyrrverandi lærisveinar Freys í Brann unnu 2-1 sigur gegn Start í dag, í fyrsta leik sínum eftir brotthvarf hans, þar sem sigurmarkið kom á 90. mínútu. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann og lék fram á 62. mínútu. Sævar Atli Magnússon var svo á varamannabekknum og gæti því farið að spila að nýju eftir langvinna baráttu við meiðsli, en Eggert Aron Guðmundsson var utan hóps.

Viðar Ari Jónsson var á varamannabekknum hjá HamKam sem gerði 2-2 jafntefli við Sandefjord á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×