Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Árni Gísli Magnússon skrifar 12. júlí 2026 22:07 Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var að vonum vonsvikinn eftir leik á Akureyri í kvöld. Vísir/Einar Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, segir erfitt að kyngja tapi liðsins gegn KA í Bestu deildinni í kvöld, eftir að hafa verið 2-0 yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann segir sömu sögu endurtaka sig aftur og aftur og eitthvað þurfi að breytast. „
Já það er það. Þetta er að verða pínu kjánalegt, það er alltaf sama sagan, ég er að segja sama hlutinn leik eftir leik eftir leik. Við fáum helling af færum, við nýtum færin okkar illa. Liðin sem við spilum við þurfa engin færi til að skora á móti okkur. Við komumst yfir, náum góðri forystu, ég held þetta sé í þriðja skipti í sumar sem við töpum niður tveggja marka forystu sem er alveg galið. Enn einu sinni er maður hérna eftir leik þar sem við erum betri og erum ekki að vinna leiki sem er náttúrulega alveg út í hött sko.“ „Nú erum við búnir að spila tvo leiki við KA og fá eitt stig út úr þeim. En það þýðir ekki að koma hérna aftur og aftur og aftur og vera með sama vælið sko, eitthvað verður að breytast.“ Hvað þarf að breytast? Það er góð spurning. Það eru hlutir sem við höfum verið að vinna í. Höfum verið að vinna í áræðninni í teignum hjá okkur, í að klára færin, höfum verið að vinna í ýmsum hlutum sem við teljum vera að. Ef þú tekur bara þennan leik, fyrri hálfleikur var daufur. Við vorum enn þá einhversstaðar hoppandi og skoppandi í flugvélinni en vorum samt betri. Þeir fengu engin færi í fyrri hálfleik, þeir fengu tvö færi í leiknum og hvorugt þeirra skora þeir úr. Færið þarna þegar hann var rangstæður fyrir innan og lét boltann fara og Jón Sölvi (Símonarson) varði vel og færið þegar Böddi (Böðvar Böðvarsson) rúllaði til baka, Jón Sölvi ver vel. Svo mörkin þeirra náttúrulega skelfileg sko.“ Segir Danijel hafa hent sér niður KA skoraði sigurmarkið á lokaandartökum leiksins þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson fylgdi eftir eigin vítaspyrnu sem Jón Sölvi varði. Brot var dæmt á Jón Gísla Eyland eftir átök við Danijel Dejan Djuric í teignum og lá Lárus Orri ekki á skoðunum sínum varðandi dóminn. „Nei nei, þetta er náttúrulega aldrei víti sko, þetta var mjög skrítin lína sem dómarinn var með í leiknum eiginlega. Hún hallaði ekkert á okkur frekar en KA menn, hún var bara mjög sérstök og var mjög erfitt að taka þátt í leiknum þar sem þú hefur ekki hugmynd um hvað er að fara gerst næst í dómgæslunni en þetta var náttúrulega aldrei víti, Danijel (Dejan Djuric) hendir sér bara niður og Jón Gísli er klaufalegur en hann skoraði ekki úr vítinu, hann varði vítið, og við erum ekki mættir sem er kannski lýsandi fyrir okkar vandamál; við erum ekki nógu grimmir í þessum stöðum.“ Horfast í augu við fallbaráttuna Lárus talar um að lið hans tapi aftur og aftur leikjum þar sem það er betri aðilinn en hann segist ekki vera með ástæðuna fyrir því hvers vegna þetta gerist endurtekið. „Ég ég hefði það á reiðum höndum myndi ég segja þér það og þá væri ég búinn að laga það. Mér fannst við ekkert endilega stíga eitthvað til baka í þessum leik þegar við fáum á okkur mark, mér fannst við halda áfram, fengum færi þegar staðan er orðin 2-1. Það vantar bara að vera grimmir og klára leikinn, það er bara þannig, þegar staðan er 2-0 eigum við að halda áfram og klára leikinn. Sama sagði ég á móti Breiðablik, ég sagði í staðinn fyrir síðasta leik þegar staðan var 1-0 fyrir okkur í hálfleiknum hefði staðan átt að vera 2-0 eða 3-0. Ég nenni ekkert að standa hérna endalaust og tala um þetta, þetta er eitthvað sem við verðum bara að laga.“ „Staðan er mjög einföld fyrir okkur núna, við erum bara í bullandi fallbaráttu og nú þurfum við bara að horfast í augu við það.“ Horfirðu á framhaldið sem einmitt bara bullandi fallbaráttu eða eruð þið að stefna á topp sex? Nei alls ekki, á meðan við erum í fallbaráttu erum við bara að eiga við það. Þegar við erum búnir að eiga við það og komnir úr fallbaráttu þá getum við leyft okkur að fara hugsa um eitthvað annað en þangað til er þetta bara fallbarátta stöðug.“
Besta deild karla ÍA Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira