Gagnrýnin byggð á misskilningi Smári Jökull Jónsson skrifar 13. júlí 2026 07:58 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. vísir/Lýður Valberg Barna- og menntamálaráðherra segir gagnrýni samtaka sveitarfélaga um að ríkið sé að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna með fjölþættan vanda byggða á misskilningi. Ríkinu sé í lófa lagið að snúa fyrirkomulaginu til fyrra horfs sé það vilji sveitarfélaga.
Samband íslenskra sveitarfélaga er á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt nýja reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins er varðar þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Samningur var undirritaður um málaflokkinn á síðasta ári og er áðurnefndri reglugerð ætlað að útfæra samkomulagið enn frekar. Sveitarfélögin segja að ríkið sé með reglugerðinni að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna en í vikunni kom einnig fram gagnrýni frá bæjarstjórn Kópavogs og þá skrifaði bæjarstjóri Árborgar skoðanagrein þar sem hann hvatti ríkið til að standa við gerða samninga. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir gagnrýnina byggða á misskilningi. „Við vorum með okkar stóra hjarta í stjórnarmyndun og ákváðum að eigin frumkvæði að taka til okkar 15% sem sveitarfélögin þurftu að greiða í uppbyggingu hjúkrunarheimila og bæta 3000 milljónum eða þremur milljörðum í þyngstu og erfiðustu þjónustu þeirra við dýrustu meðferðarúrræði barna með mjög svo erfiðar og þungar þarfir,“ segir Inga. Hún segir rangt sem Samband sveitarfélaganna segi að tíu börn falli undir reglugerðina, þau verði nær þrjátíu. Ríkið ætli sér að koma upp þjónustuúrræðum fyrir börn sem vistast utan heimilis en ætli sér ekki að fara inn í þriðja stigs þjónustu fatlaðra sem sé studd af ríkinu, meðal annars í gegnum jöfnunarsjóð. Samkomulagið sé skýrt. „Það voru þrír milljarðar sem við erum að fara að rétta sveitarfélögunum að eigin frumkvæði. Ég hef líka sagt við þau, ef þau eru að tala um það hreinlega að þau standi verr eftir að þau fá þrjá milljarða bara í svona góðhjartaða gjöf frá okkur í ríkisstjórninni, þá er okkur náttúrulega í lófa lagið að snúa þessu við og hafa þetta nákvæmlega á þeim stað sem það var,“ segir hún.
Börn og uppeldi Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira