„Það varð uppi fótur og fit“ Smári Jökull Jónsson skrifar 13. júlí 2026 12:08 Viðartittlingurinn sem sást í Kjósinni um helgina. Vísir/Sveinn Jónsson Uppi varð fótur og fit hjá fuglaáhugamönnum að sögn fuglafræðings eftir að sást til Viðartittlings í Kjósinni. Er þetta í fyrsta sinn sem sést til tegundarinnar hér á landi og aðeins í annað sinn í Evrópu.
Heimkynni viðartittlings eru í Norður-Ameríku og eina skiptið sem áður hefur sést til hans í Evrópu var í Svíþjóð fyrir um áratug. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir um merkilegan atburð að ræða. „Það varð uppi fótur og fit. Það er alltaf ef það sést sjaldgæfur fugl og þá tala ég ekki um ný tegund fyrir landið. Þá rjúka menn upp til handa og fóta, það var alveg múgur og margmenni þegar ég kom þarna upp í Kjós,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur í samtali við fréttastofu. Fuglar fjúki í lægðagangi Nefndi hann sérstaklega íbúa á bænum Miðdal í Kjós sem tóku vel á móti fuglaáhugamönnum. „Þetta er bara heima á sveitabæ og fólkið þau eru mjög almennileg og jákvæð íbúarnir, Þau tilkynntu um fuglinn upphaflega, búa þarna á bænum.“ Bóndinn á bænum Miðdal í Kjós tilkynnti um viðartittlinginn.Vísir/Sveinn Jónsson Fuglaáhugamaðurinn Sveinn Jónsson tók myndirnar af viðartittlingnum og sagði hann hafa verið erfiðan viðureignar. Ómögulegt sé að vita hvernig fuglinn hafi komið til landsins. „Venjulega þá fjúka fuglar hingað í einhverjum lægðagangi sem kemur frá Ameríku. Síðasta haust þá kom mikið af amerískum flækingsfuglum hingað og allavega tvær nýjar tegundir fyrir landið sem eru mjög sjaldgæfar,“ segir Jóhann Óli. „Þetta var bara með lægðum en það er nú ein kenning um að fuglinn hafi komið með skipi,“ bætir hann við. Komur sjaldgæfra fugla gætu aukist Fuglinn gæti hafa verið í æti hjá fólki sem ekki hafi tekið eftir honum í garðinum. Hér á landi sé þó kjörið búsvæði fyrir viðartittling og því gæti það gerst síðar samhliða breytingum á lífríkinu. „Maður sér þetta bara á íslenskum fuglum, hvernig farfuglar koma fyrr á vorin og sjófuglarnir og þessar norðlægu tegundir eru að hverfa frá landinu.“ Búsvæði viðartittlings er í Norður-Ameríku.Vísir/Sveinn Jónsson „Það getur vel verið að það aukist komur sjaldgæfra fugla og fugla annars staðar frá samhliða loftslagsbreytingum,“ segir Jóhann Óli að lokum.
Fuglar Dýr Kjósarhreppur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira