Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 07:00 Hafþór Júlíus Björnsson sést hér í heimsmettilrauninni sinni í Los Angeles. @thorbjornsson Í annað skiptið í röð tókst íslenska aflraunamanninum Hafþóri Júlíusi Björnssyni ekki að slá heimsmetið sitt í réttstöðulyftu en hann reyndi á ný í Bandaríkjunum um helgina.
Hafþór reyndi við nýtt heimsmet á fyrstu Enhanced Breakers-keppninni í Los Angeles en hún er hluti nýrrar viðburðaraðar þar sem fremstu íþróttamenn heims munu reyna að slá heimsmet með því að nota frammistöðubætandi efni. Hafþóri hafði mistekist að lyfta 515 kílóum á Steraleikunum þegar hann ætlaði að slá heimsmetið um fimm kíló en það var fyrr í sumar. Hafþór fór aðeins varlegar núna og reyndi að bæta heimsmetið aðeins um eitt kíló. 511 kílóin fóru þó ekki á loft hjá honum sem voru vonbrigði fyrir bæði hann, mótshaldara og aðdáendur hans. Hafþór sýndi þessa misheppnuðu heimsmetstilraun sína á samfélagsmiðlum sínum en það er enginn uppgjafartónn í þessum 37 ára kappa. „Þér mistekst aðeins þegar þú hættir að reyna. Ég er ekki hættur. 511 kg munu fara upp!“ skrifaði Hafþór. Hann hafði áður tjáð sig um vonbrigðin. „511 kg. Ég klikkaði. Grillið mig í athugasemdunum, ég á það skilið,“ skrifaði Hafþór strax eftir að lyftan mistókst. View this post on Instagram A post shared by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson)
Aflraunir Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Njarðvík-Grindavík | Íslandsmeistararnir fá toppliðið í heimsókn Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Sjá meira