Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 14. júlí 2026 11:50 Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Þingmanni er misboðið vegna gyðingandúðar á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að menningarhús gyðinga var opnað í miðborginni. Hún gerir ráð fyrir að lögregla taki málið til rannsóknar án tafar.
Ný menningarmiðstöð gyðinga var nýverið opnuð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu. Húsið er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og þegar rabbínin Avraham Feldman deildi tíðindunum á samfélagsmiðlum sagði hann tíma til kominn að samfélag gyðinga fengi fastan stað hér á landi. Fjallað var um tímamótin í öllum helstu fjölmiðlum og athygli hefur vakið hversu rætin umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum. Hátt í fimm hundruð athugasemdir má finna undir stökum fréttum og stóran hluta þeirra má líklega flokka sem hatursorðræðu gagnvart gyðingum. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir umræðuna sláandi. „Það er ömurlegt að sjá þessi viðbrögð og það fyrsta sem kemur upp í hugann á mér er hversu valkvætt það virðist vera hvaða þjóðerni sé skotspónn þessarar hatursorðræðu,“ segir Diljá. „Við höfum til að mynda nýlega orðið vör við mótmæli Írana hér á landi og að sjálfsögðu er andúð á klerastjórninni í Íran, sem hefur drepið tugi þúsunda eigin borgara, ekki að bitna á Írönum sem hér búa. Það sama ætti auðvitað að gildi um alla. Ég geri ráð fyrir því að lögregla taki þetta til rannsóknar án tafar.“ Ný menningarmiðstöð er nú í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu.vísir/facebook Rætt hefur verið um vaxandi gyðingaandúð á heimsvísu undanfarið og til að mynda voru lögreglan og sérsveit með viðbúnað í tengslum við ljósagöngu gyðinga í miðbænum í vetur. Diljá Mist segir mikilvægt að kveða niður skaðlega orðræðu . „Þetta er mein í samfélaginu sem auðvitað skiptir máli að allir séu meðvitaðir um. Ég hef séð að einhverjir kollegar mínir hafa þegar haft orð á þessu og það skiptir máli að við göngum á undan með góðu fordæmi og höfum hátt og látum í okkur heyra þegar okkur misbýður svona hegðun.“
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Trúmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira