„One love“ til allra í kommentakerfinu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 14. júlí 2026 20:00 Margir í athugasemdakerfum samfélagsmiðla vönduðu Jóni Gnarr, þingmanni Viðreisnar, ekki kveðjurnar eftir að hann mætti í opnunarhóf menningarhúss gyðinga á Íslandi. vísir/Sigurjón Þingmaður sem sótti opnun á nýju menningarhúsi gyðinga blöskrar orðræða í þeirra garð. Hann vonar að starfsemin verði til þess að skapa vitræna umræðu um samfélag gyðinga á Íslandi og segir mannfyrirlitninguna sorglega.
Ný menningarmiðstöð gyðinga var nýverið opnuð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu. Nokkuð fjölmennt var í opnunarhófinu enda er um fyrsta hús sinnar tegundar hér á landi að ræða. Einn þingmaður mætti í hófið en það var Jón Gnarr, þingmaður Viðeisnar, og hlaut viðvera hans misjafnar undirtektir á samfélagsmiðlum. Jón segist hafa fengið boð í opnunarhófið eftir að hafa sett sig í samband við rabbínan Avraham Feldman til þess að forvitnast um nýja menningarhúsið. Jón bendir á að hann umgangist fólk í ýmsum kimum samfélagsins. „Ég mætti til dæmis líka hjá samtökunum Horizon, sem eru samtök múslima á Íslandi, og fagnaði með þeim lokum Ramadan,“ segir Jón. Það er þó ekki bara á Facebook síðu Jóns Gnarrs þar sem rætin umræða hefur skapast í kjölfar opnunarinnar. Athugasemdir hjá ýmsum fjölmiðlum skipta hundruðum og jafnvel þúsundum og stóran hluta þeirra mætti líklega flokka sem hatursorðræðu. Hér má sjá nokkrar athugasemdir undir fréttum um nýja menningarmiðstöð gyðinga.Vísir Jón segir sorglegt að fylgjast með umræðunni. „Að svona mannfyrirlitning fyrirfinnist hér finnst mér bara sorglegt. Ég vona að þessi starfsemi geti hjálpað til við að eyða því og skapað einhverja vitræna umræðu. Þetta eru mikil gífuryrði og það er bara ömurlegt.“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hvatti lögreglu í dag til þess að rannsaka ummælin og sagði nauðsynlegt að sporna við gyðingaandúð sem hafi farið vaxandi víða um heim. Jón hvetur einnig til stillingar. „Ég stend með öllu fólki og mér finnst að við ættum að gera meira af því og minna af hinu helvítis draslinu. Einhver skilaboð til fólksins í kommentakerfinu? Bara, One love“
Viðreisn Trúmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira